{"code":"3212","title":"Tækni- og rannsóknarstörf í lífeindafræði","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"321","title":"Tækni- og aðstoðarstörf á sviði lækninga og lyfjafræði","level":3},"description":"Tækni- og rannsóknarstörf í lífeindafræði fela í sér að framkvæma klínískar prófanir á blóðsýnum, líkamsvökva og vefjum fyrir upplýsingar um heilsufar sjúklinga eða dánarorsakir.","tasks":["að gera efnagreiningu á blóði, þvagi og mænuvökva,","að starfrækja, stilla og viðhalda búnaði sem notaður er við greiningu,","að færa niðurstöður í skráningarkerfi og koma upplýsingum til lækna og annarra sérfræðinga,","að greina sýni líffræðilegra efna og athuga efnainnihald eða efnahvörf,","að setja upp, hreinsa og viðhalda búnaði fyrir rannsóknarstofur,","að greina rannsóknarniðurstöður og kanna áreiðanleika,","að setja fram og hafa eftirlit með áætlunum til að tryggja áreiðanleika niðurstaðna og þróa, staðla, meta og breyta verklagi, aðferðum og prófunum sem notaðar eru við greiningu sýna,","að rækta sýni, einangra og greina örverur,","að rannsaka frumur sem hafa verið litaðar og finna frávik."],"example_titles":["lífeindafræðingur"],"notes":null}