{"code":"3214","title":"Störf við stoðtækja- og tannsmíði","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"321","title":"Tækni- og aðstoðarstörf á sviði lækninga og lyfjafræði","level":3},"description":"Störf við stoðtækja- og tannsmíði fela í sér að hanna, stilla, sinna viðhaldi og viðgerðum á stoðtækjum, lækninga- og tannlækningatækjum og búnaði samkvæmt fyrirmælum eða leiðbeiningum. Stoðtækja- og tannsmiðir geta veitt þjónustu með fjölmörg stoðtæki, svo sem hálskraga, spelkur, gervilimi, heyrnartæki, innlegg, gervigóma, tannkrónur og -brýr.","tasks":["að skoða, taka viðtöl við og mæla sjúklinga, ákvarða þarfir þeirra fyrir stoðtæki og greina þá þætti sem gætu haft áhrif á uppsetningu hjálpartækja,","að ráðfæra sig við lækna og tannlækna í því skyni að setja fram nákvæmar skilgreiningar og fyrirmæli um stoðtæki og -búnað,","að búa til eða taka við gifsmótum eða mátum af bol, útlimum, munni eða tönnum sjúklinga fyrir gerð stoðtækis eða -búnaðar,","að hanna og búa til innlegg og gervilimi,","að setja upp stoðtæki og –búnað og prófa, meta og aðlaga hann að sjúklingum,","að gera við, breyta og sinna viðhaldi á lækninga- og tannlækningahjálpartækjum og stoðtækjum,","að smíða gervigóma, krónur, og brýr,","að leiðbeina sjúklingum varðandi notkun stoðtækja, gervilima eða innleggja."],"example_titles":["stoðtækjasmiður","tannsmiður"],"notes":null}