{"code":"3230","title":"Sérhæfð störf í óhefðbundnum lækningum","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"323","title":"Sérhæfð störf í óhefðbundnum lækningum","level":3},"description":"Sérhæfð störf í óhefðbundnum lækningum fela í sér að leiðbeina einstaklingum varðandi lífstíl eða mataræði til að viðhalda eða endurheimta andlegt og líkamlegt heilbrigði og styrk. Fólk sem sinnir þessum störfum veitir meðhöndlun með aðferðum og lyfjum, annað hvort í sjálfstæðum rekstri eða í samræmi við meðferðaráætlanir sem ákveðnar eru af sérfræðingum innan heilbrigðiskerfisins.","tasks":["að eiga viðtöl við einstaklinga og ráðleggja þeim um heilsufarsástand, sjúkdóma eða aðra kvilla,","að veita meðhöndlun með nálastungumeðferð, ayurvedískri meðferð, remedíum og jurtalyfjum í samræmi við meðferðaráætlanir,","að ráðleggja einstaklingum, fjölskyldum og samfélaginu um heilsu, næringu, hreinlæti, lífsstíl o.þ.h. til að viðhalda eða bæta heilsu og vellíðan,","að vísa sjúklingum til annars heilbrigðisstarfsfólks og skiptast á upplýsingum við það til að tryggja heildstæða og samfellda meðferð."],"example_titles":["grasalæknir","hómópati","nálastungutæknir"],"notes":null}