{"code":"3240","title":"Tækni- og aðstoðarstörf í dýralækningum","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"324","title":"Tækni- og aðstoðarstörf í dýralækningum","level":3},"description":"Tækni- og aðstoðarstörf í dýralækningum fela í sér að sinna verkefnum er snúa að ráðgjöf, greiningu, forvörnum og aðstoð við dýralækna. Fólk í þessum störfum sinnir dýrum í meðferð og tímabundinni vistun á dýraspítölum og aðstoðar dýralækna við að framkvæma meðferðir og aðgerðir.","tasks":["að veita upplýsingar og ráð um meðferð og umhirðu dýra, sjúkdóma og áverka,","að skoða dýr til að greina kvilla eða vísa erfiðari tilfellum til dýralækna,","að veita veikum dýrum eða dýrum með áverka meðferð, einkum við algengum sjúkdómum og kvillum,","að hreinsa og sótthreinsa borð og áhöld sem notuð eru við læknisrannsóknir og taka til það sem þarf fyrir skoðun og meðferð dýra,","að búa dýr undir skoðun eða meðferð og skorða þau eða halda föstum meðan á meðferð stendur,","að aðstoða dýralækna við að gefa svæfingarlyf og súrefni meðan á meðferð stendur og fylgjast með ástandi dýra eftir aðgerðir,","að taka röntgenmyndir og sýni og framkvæma aðrar prófanir á rannsóknarstofum og aðstoða við greiningar,","að sinna venjubundnum tannaðgerðum á dýrum og aðstoða dýralækna við tannlækningar."],"example_titles":["aðstoðarfólk dýralæknis"],"notes":null}