{"code":"3252","title":"Sérhæfð störf við meðhöndlun heilbrigðisgagna","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"325","title":"Störf annars sérhæfðs starfsfólks í heilbrigðisgreinum","level":3},"description":"Sérhæfð störf við meðhöndlun heilbrigðisgagna fela í sér að þróa, halda við og innleiða kerfi fyrir vinnslu, geymslu og endurheimt sjúkraskráa innan heilbrigðisþjónustu til að uppfylla lagalegar, faglegar og siðferðislegar kröfur og gæðastaðla varðandi skráningu heilbrigðisgagna.","tasks":["að sjá um heildstæða umsjón heilbrigðisgagna,","að skrá, taka saman og vinna úr sjúkraskrám, læknaskýrslum og skjölum um innlagnir og færa inn í skráningarkerfi,","að rýna skrár og athuga heilleika, nákvæmni og fylgni við reglugerðir,","að færa texta og tölulegar upplýsingar sjúkraskráa og annarra skjala yfir í kóða staðlaðra flokkunarkerfa,","að tryggja öryggi heilbrigðisupplýsinga og að trúnaðar sé gætt varðandi persónuupplýsingar samkvæmt lögum,","að hafa umsjón með verkefnum starfsfólks sem kemur að viðhaldi sjúkraskráa."],"example_titles":["heilbrigðisgagnafræðingur","læknaritari"],"notes":null}