{"code":"3322","title":"Störf við umboðssölu","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"332","title":"Sérhæfð innkaupa- og sölustörf","level":3},"description":"Störf við umboðssölu fela í sér að koma fram fyrir hönd fyrirtækis eða tiltekinnar framleiðslu, selja fyrirtækjum og stofnunum ýmsar vörur og þjónustu og veita sértækar vöruupplýsingar.","tasks":["að útbúa pantanir og selja vörur til smásöluverslana, iðnfyrirtækja, heildsöluverslana og annarra fyrirtækja og stofnana,","að öðlast og auka við þekkingu á markaðsaðstæðum og vörum og þjónustu vinnuveitenda og keppinauta,","að veita mögulegum viðskiptavinum upplýsingar um eiginleika og virkni söluvara eða -búnaðar og sýna fram á gagnsemi eða kosti þeirra,","að gefa upp verð, skrá niður pantanir og skipuleggja vöruafhendingar,","að upplýsa birgja og framleiðendur um viðbrögð og kröfur viðskiptavina."],"example_titles":["fulltrúi við umboðssölu"],"notes":null}