{"code":"3323","title":"Störf við innkaup í fyrirtækjum og stofnunum","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"332","title":"Sérhæfð innkaupa- og sölustörf","level":3},"description":"Störf við innkaup í fyrirtækjum og stofnunum fela í sér að kaupa vörur og þjónustu til notkunar eða endursölu fyrir hönd fyrirtækja og stofnana.","tasks":["að útbúa samninga og semja um skilmála varðandi kaup á búnaði, hráefnum, afurðum, þjónustu og vörum til endursölu,","að kaupa búnað, efni eða þjónustu til notkunar eða frekari vinnslu hjá eigin fyrirtæki,","að kaupa varning til endursölu af smásölu- eða heildsölufyrirtækjum sem uppfylla kröfur fyrirtækisins,","að kynna sér skýrslur og kynningarefni, fara á vörusýningar eða í verksmiðjur,","að halda fundi með birgjum og semja um verð, afslætti, greiðslufresti og tilhögun vöruafhendingar,","að hafa yfirumsjón með dreifingu á varningi og sjá til þess að fullnægjandi birgðir séu tiltækar á lager,","að skipuleggja afhendingaráætlanir, fylgjast með framvindu og hafa samband við viðskiptavini og birgja til að leysa úr vandamálum."],"example_titles":["innkaupafulltrúi"],"notes":null}