{"code":"3339","title":"Störf fulltrúa í viðskiptaþjónustu ót.a.s.","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"333","title":"Störf fulltrúa í viðskiptaþjónustu","level":3},"description":"Undir þennan starfaflokk falla störf fulltrúa í viðskiptaþjónustu sem ekki eru flokkuð annars staðar í klasa 333: Störf fulltrúa í viðskiptaþjónustu. Í þessum klasa eru meðal annars störf þeirra sem koma á viðskiptasamböndum, selja þjónustu til fyrirtækja eins og auglýsingarými í fjölmiðlum, útbúa og skipuleggja pakka- og hópferðir, útbúa samninga fyrir íþróttafólk, skemmtikrafta, listamenn og rithöfunda og selja eignir og vörur á uppboði.","tasks":["að afla upplýsinga um þá þjónustu sem á að selja og þarfir líklegra kaupenda,","að sjá um samninga fyrir hönd seljanda eða kaupanda og útskýra sölu- og greiðsluskilmála fyrir viðskiptavinum,","að undirrita samninga fyrir hönd seljanda eða kaupanda og ganga úr skugga um að samningurinn sé uppfylltur,","að sjá um að viðskiptaþjónusta sé aðgengileg kaupanda á því formi og þeim tíma sem samið var um,","að skipuleggja og bóka ferðir fyrir hópa,","að selja á uppboði ýmsar tegundir eigna, svo sem bifreiðar, listaverk og skartgripi."],"example_titles":["auglýsingasali","umboðsmaður íþróttafólks","umboðsmaður rithöfunda","umboðsmaður tónlistarfólks","uppboðshaldari Störf sérhæfðra fulltrúa og ritara Störf sérhæfðra fulltrúa og ritara fela í sér að styðja við skipulag, samhæfingu stjórnunar, samskipti og skjalaskráningu með þekkingu á starfsemi viðkomandi fyrirtækis eða stofnunar. Verkstjórn annars starfsfólks getur falist í starfssviðinu."],"notes":null}