{"code":"3351","title":"Störf við tollgæslu og útlendingaeftirlit","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"335","title":"Sérhæfð störf hjá opinberum eftirlitsstofnunum","level":3},"description":"Störf við tollgæslu og útlendingaeftirlit fela í sér landamæraeftirlit með einstaklingum og vörum og sjá til þess að farið sé eftir gildandi opinberum lögum og reglugerðum.","tasks":["að hafa eftirlit með landamærum og hindra ólöglega komu eða brottför einstaklinga,","að hindra ólöglegan inn- eða útflutning á gjaldeyri eða vörum,","að skoða skilríki einstaklinga sem fara yfir landamæri og ganga úr skugga um að þeir hafi nauðsynlegar heimildir,","að skoða farangur einstaklinga sem fara yfir landamæri og ganga úr skugga um að hann sé í samræmi við reglur um inn- eða útflutning á vörum og gjaldeyri,","að skoða flutningsskjöl og farm ökutækja við landamæri og ganga úr skugga um að hann sé í samræmi við reglur er varða vöruflutninga,","að leita á fólki ef ástæða þykir til, setja einstaklinga í gæslu og gera upptækar vörur eða hluti,","að samræma aðgerðir og vera í samstarfi við aðrar stofnanir sem sinna löggæslu, brottvísunum og saksóknum,","að skrá niður úrskurði, færslur, brot og ákvarðanir,","að bera vitni fyrir dómstólum ef þörf krefur."],"example_titles":["fulltrúi við vegabréfaeftirlit","tollvörður"],"notes":null}