{"code":"3354","title":"Störf við leyfisveitingar og útgáfu skilríkja","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"335","title":"Sérhæfð störf hjá opinberum eftirlitsstofnunum","level":3},"description":"Störf við leyfisveitingar og útgáfu skilríkja fela í sér að skoða og meta leyfisumsóknir vegna út- og innflutnings á vörum, stofnunar fyrirtækja, byggingar húsa eða annarra mannvirkja og umsókna vegabréfa auk þess að tilgreina sérstök skilyrði eða sérstakar takmarkanir á útgefnum leyfum.","tasks":["að veita einstaklingum ráðgjöf um lög og reglugerðir varðandi nauðsynleg leyfi, skilyrði fyrir slíkum leyfum og réttindi og skyldur almennings,","að skoða og meta umsóknir og tengd gögn og ákveða hvort gefa skuli út leyfi, vegabréf, ökuskírteini eða önnur skilríki,","að vinna úr umsóknum, skrá niður mat og ákvarðanir og skrifa bréf til að tilkynna umsækjendum um leyfisveitingar."],"example_titles":["fulltrúi við leyfisveitingar","skrifstofufólk við útgáfu persónuskilríkja"],"notes":null}