{"code":"3355","title":"Störf við löggæslu og lögreglurannsóknir","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"335","title":"Sérhæfð störf hjá opinberum eftirlitsstofnunum","level":3},"description":"Störf við löggæslu og lögreglurannsóknir fela í sér að tryggja að lögum og reglum sé fylgt, rannsaka afbrot og afla upplýsinga um kringumstæður eða hegðun einstaklinga til að koma upp um brotamenn og fyrirbyggja afbrot.","tasks":["að koma á fót tengiliðum og heimildarmönnum vegna skipulagningar afbrota eða varðandi afbrot sem þegar hafa verið framin,","að rannsaka og koma höndum yfir sönnunargögn með því að skoða afbrota- eða slysstaði og leita vísbendinga, yfirheyra vitni og meinta brotamenn,","að greina sönnunargögn til að leysa sakamál, koma auga á afbrotastarfsemi og safna gögnum fyrir dómsmál,","að sjá um handtökur,","að bera vitni fyrir dómstólum eða tilkynna stjórnendum um kringumstæður og niðurstöður rannsókna,","að stýra umferð og stjórna aðstæðum á slysstað,","að bregðast við neyðartilvikum."],"example_titles":["lögregluþjónn","rannsóknarlögreglumaður","varðstjóri"],"notes":null}