{"code":"3422","title":"Störf við íþróttaþjálfun og dómgæslu","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"342","title":"Sérhæfð störf í íþróttum og líkamsrækt","level":3},"description":"Störf við íþróttaþjálfun og dómgæslu fela í sér að starfa með áhuga- og atvinnufólki í íþróttum, þjálfa og bæta frammistöðu þess, skipuleggja íþróttaviðburði og dæma íþróttaleiki samkvæmt leikreglum.","tasks":["að skipuleggja þjálfun og æfingar,","að hvetja íþróttafólk áfram og undirbúa fyrir keppnir,","að búa til keppnisáætlanir, þróa leikjaáætlanir og leiðbeina íþróttafólki á meðan á keppnum stendur,","að greina og meta frammistöðu íþróttafólks eða liða og breyta æfingaráætlunum eftir þörfum,","að greina leikni og frammistöðu og ákveða úrbætur,","að sinna dómgæslu í íþróttakeppnum og tryggja að farið sé eftir leik- og öryggisreglum,","að fylgjast með leiktíma og halda stigaskor,","að dæma frammistöðu keppenda, gefa stig, dæma víti fyrir brot og taka ákvarðanir um úrslit."],"example_titles":["íþróttaþjálfari","íþróttadómari"],"notes":null}