{"code":"3432","title":"Störf við hönnun og útstillingu","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"343","title":"Sérhæfð störf innan lista, menningar og matreiðslu","level":3},"description":"Störf við hönnun og útstillingu snúast um að skipuleggja og hanna innra rými verslana, fyrirtækja og íbúðarhúsnæðis. Störf við slíka hönnun fela einnig í sér að samræma og taka þátt í smíði og uppsetningu.","tasks":["að ákvarða útfærslu hönnunar í samráði við viðskiptavini,","að meta kröfur og greina þarfir út frá rými, hagnýtingu, öryggi og fagurfræði,","að þróa hönnunarhugmyndir fyrir innra rými bygginga,","að útbúa teikningar, skýringarmyndir og uppdrætti til að miðla hugmyndum og útfærslum,","að meta, velja og mæla með efnum, húsgögnum og vörum fyrir innra rými,","að samræma smíðar og skreytingar,","að hanna og mála sviðsmyndir,","að hanna, stilla upp í og skreyta sýningarglugga og önnur svæði til að kynna vörur og þjónustu."],"example_titles":["innanhússhönnuður","leikmyndahönnuður","útstillingahönnuður"],"notes":null}