{"code":"3434","title":"Störf við hönnun rétta og samsetningu matseðla","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"343","title":"Sérhæfð störf innan lista, menningar og matreiðslu","level":3},"description":"Störf við hönnun rétta og samsetningu matseðla fela í sér að setja saman rétti og matseðla, hafa yfirumsjón með skipulagi, undirbúningi og matreiðslu máltíða á hótelum, veitingastöðum og mötuneytum, um borð í skipum og á einkaheimilum.","tasks":["að hanna, setja saman og þróa rétti og matseðla, gera kostnaðaráætlanir og sjá um innkaup hráefna,","að hafa eftirlit með gæðum rétta frá undirbúningi til framreiðslu,","að skoða birgðir, búnað og vinnusvæði og gæta þess að farið sé eftir gildandi stöðlum,","að ákveða og hanna framsetningu matvæla,","að taka þátt í ráðningarferli á starfsfólki í eldhúsi og fylgjast með frammistöðu þess,","að undirbúa og elda flókna rétti,","að leiðbeina starfsfólki varðandi reglur um hollustuhætti og öryggi matvæla og fylgja því eftir."],"example_titles":["yfirkokkur"],"notes":null}