{"code":"3522","title":"Störf í fjarskiptatækni","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"352","title":"Tæknistörf við fjarskipti og útsendingar","level":3},"description":"Störf í fjarskiptatækni fela í sér að sinna tæknilegum verkefnum og aðstoða við rannsóknir í fjarskiptaverkfræði og hönnun, framleiðslu, samsetningu, byggingu, rekstri, viðhaldi og viðgerðum á fjarskiptabúnaði.","tasks":["að veita tæknilega aðstoð hvað varðar rannsóknir og þróun á fjarskiptabúnaði eða prófun á frumgerðum,","að ákvarða vinnuaðferðir út frá verk- og yfirlitsteikningum,","að koma að gerð kostnaðaráætlunar fyrir framleiðslu og uppsetningu fjarskiptabúnaðar,","að hafa eftirlit með tæknilegum þáttum framleiðslu, notkunar, viðhalds og viðgerða á fjarskiptabúnaði og tryggja fullnægjandi afköst í samræmi við forskriftir,","að beita þekkingu í fjarskiptatækni til að greina og leysa vandamál sem upp koma."],"example_titles":["tæknifólk í fjarskiptum","tæknir við fjarskiptabúnað"],"notes":null}