{"code":"5152","title":"Störf við hússtjórn","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"515","title":"Störf umsjónarfólks við þrif og fasteignir","level":3},"description":"Störf við hússtjórn fela í sér verkefni tengd hússtjórn á einkaheimilum og litlum gististöðum, með eða án aðstoðarfólks.","tasks":["að hafa umsjón með og stýra starfsfólki við ræstingar á heimilum og litlum gististöðum,","að annast innkaup og hafa eftirlit með birgðastöðu,","að sópa eða ryksuga, þrífa og bóna gólf, húsgögn og annan húsbúnað,","að búa um rúm, þrífa baðherbergi, skipta um handklæði og hreinlætisvörur,","að sinna gæludýrum og plöntum, taka á móti gestum, svara í síma, koma skilaboðum áfram og kaupa inn,","að undirbúa og elda máltíðir og framreiða mat,","að þrífa eldhús og veita almenna aðstoð við eldhússtörf, þar með talið uppvask."],"example_titles":["umsjón gistiheimilis"],"notes":"Hér flokkast störf þar sem stjórnun og starfsmannahald er lítill hluti verkefna. Ef stjórnun og starfsmannahald eru umfangsmeiri en önnur verk, svo sem móttaka, bókanir og þrif, flokkast viðkomandi starf í 1411 Störf stjórnenda í hótelrekstri."}