{"code":"5153","title":"Störf við umsjón fasteigna","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"515","title":"Störf umsjónarfólks við þrif og fasteignir","level":3},"description":"Störf við umsjón fasteigna fela í sér að líta eftir og sinna viðhaldi á íbúðabyggingum, hótelum, fyrirtækjum, kirkjum og öðrum byggingum og lóðum og halda þeim þrifalegum og í góðu ástandi. Umsjón og skipulag vinnu annars starfsfólks eða verktaka getur falist í starfinu.","tasks":["að hafa umsjón með og stýra vinnu starfsfólks og verktaka við þrif og viðhald bygginga,","að taka þátt í þrifum, einföldum viðgerðum og viðhaldi bygginga, aðstoða við flutning húsbúnaðar og tilfærslur innanhúss,","að gæta að því að íbúar og gestir framfylgi reglum, svo sem varðandi hávaða eða umgengni,","að láta stjórnendur og eigendur bygginga vita þegar þörf er á stórvægilegum viðgerðum,","að vakta byggingar og lóðir þeirra og tryggja öryggi."],"example_titles":["húsvörður","kirkjuvörður Önnur störf við þjónustu Önnur störf við þjónustu fela í sér störf við stjörnuspeki, útfararstjórn, ökukennslu og umhirðu dýra."],"notes":null}