{"code":"5322","title":"Aðstoðar- og umönnunarstörf á heimilum","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"532","title":"Aðstoðar- og umönnunarstörf í heilbrigðis- og félagsþjónustu","level":3},"description":"Aðstoðar- og umönnunarstörf á heimilum fela í sér að veita einstaklingum almenna umönnun, félagslega þjónustu og aðstoð við daglegar þarfir, svo sem vegna öldrunar, veikinda eða annars líkamlegs eða andlegs ástands, á einkaheimilum, í þjónustuíbúðum og búsetukjörnum.","tasks":["að veita skjólstæðingum og fjölskyldum stuðning, upplýsingar og ráð varðandi næringu, hreinlæti, hreyfingu eða umönnun,","að sjá um þrif, innkaup og máltíðir fyrir eða með skjólstæðingum,","að veita andlegan og félagslegan stuðning,","að aðstoða skjólstæðinga við daglegar athafnir,","að aðstoða skjólstæðinga með hreyfihömlun við að komast á milli staða,","að bóka tíma og fylgja skjólstæðingum til læknis og sinna öðrum erindum."],"example_titles":["starfsfólk í heimaþjónustu"],"notes":"Umönnunar- og aðstoðarstörf flokkast hér ef um er að ræða einkaheimili, þjónustuíbúðir og búsetukjarna þar sem heilbrigðisstarfsfólk er ekki alltaf á staðnum."}