{"code":"6113","title":"Störf við garðyrkju og ylrækt","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"611","title":"Störf við akuryrkju, garðyrkju og ylrækt","level":3},"description":"Störf við garðyrkju og ylrækt fela í sér að áætla, skipuleggja og sinna verkum í landbúnaði, rækta og viðhalda trjám, runnum, blómum og öðrum plöntum í gróðurhúsum og görðum og framleiða ungtré, blómlauka og fræ eða rækta grænmeti, ber og blóm í þéttbærum búskap til sölu og dreifingar.","tasks":["að fylgjast með framboði og eftirspurn, ákveða tegundir og magn grænmetis og annarra afurða til ræktunar og skipuleggja og haga framleiðslu samkvæmt því,","að undirbúa jarðveg og setja upp og nota vökvunar- og frárennsliskerfi,","að sá fræjum, rækta gras og gróðursetja tré og garðplöntur,","að grisja og snyrta tré, runna og limgerði, setja upp stuðning og vörn fyrir plöntur,","að leggja göngustíga eða hellulögð svæði, búa til beð og setja upp veggi, beð og girðingar,","að fylgjast með heilbrigði plantna, illgresi, meindýrum og sjúkdómum,","að framleiða ungtré, blómlauka, ber og fræ,","að geyma og vinna afurðir, undirbúa til flutnings og sölu,","að kynna og markaðssetja vörur og sjá um sölu, innkaup og flutning afurða,","að þjálfa starfsfólk og sjá um ráðningar og uppsagnir."],"example_titles":["blómaræktandi","tómataræktandi","ylræktarbóndi"],"notes":null}