{"code":"6121","title":"Störf við búfjárrækt","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"612","title":"Störf við búfjárrækt","level":3},"description":"Störf við kvikfjárrækt fela í sér að áætla, skipuleggja og sinna verkum í landbúnaði, rækta og ala húsdýr (að undanskildum alifuglum), svo sem nautgripi, sauðfé, svín, geitur og hesta og framleiða kjöt, mjólkurafurðir, skinn og ull til sölu og dreifingar.","tasks":["að fylgjast með framboði og eftirspurn, ákveða tegundir og magn búfénaðar sem skal rækta og skipuleggja og haga framleiðslu samkvæmt því,","að rækta beitarland og fóðra dýr,","að fylgjast með ástandi dýra og greina meiðsli eða sjúkdóma,","að hirða, merkja, rýja og gelda dýr,","að mjólka dýr,","að blanda fóður, bætiefni og lyf eftir ákveðinni forskrift,","að sinna verkefnum sem tengjast undaneldi dýra, svo sem kynbótaræktun, sæðingu og sauðburði,","að sinna viðhaldi og þrifum á mannvirkjum, byggingum og búnaði,","að kynna og markaðssetja afurðir og sjá um sölu, innkaup og flutning á þeim,","að þjálfa starfsfólk og sjá um ráðningar og uppsagnir."],"example_titles":["nautgripabóndi","hundaræktandi","hrossaræktandi","sauðfjárbóndi"],"notes":null}