{"code":"6129","title":"Störf við búfjárrækt ót.a.s.","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"612","title":"Störf við búfjárrækt","level":3},"description":"Undir þennan starfaflokk falla störf við búfjárrækt sem ekki eru flokkuð annars staðar í klasa 612: Störf við búfjárrækt. Í þessum flokki er meðal annars starfsfólk sem sinnir undaneldi, ræktun og umhirðu loðdýra, villtra dýra, spendýra og fugla (fyrir utan alifugla).","tasks":["að fylgjast með framboði og eftirspurn á markaði og skipuleggja og haga framleiðslu samkvæmt því,","að ala, fóðra og hirða dýr,","að annast eggja- og dúntínslu,","að fylgjast með og skoða dýr, greina kvilla eða sjúkdóma og fylgjast með líkamlegu ástandi,","að sinna verkefnum sem tengjast undaneldi dýra, svo sem kynbótaræktun, sæðingu og aðstoð við burð,","að sinna viðhaldi og þrifum á skýlum, byggingum og tækjum,","að aflífa og flá dýr og undirbúa dýraafurðir fyrir sölu,","að kynna og markaðssetja afurðir og sjá um sölu, innkaup og flutning á þeim."],"example_titles":["æðarbóndi","loðdýraræktandi"],"notes":null}