{"code":"6222","title":"Störf við strandveiðar","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"622","title":"Störf við fiskveiðar og aðrar veiðar","level":3},"description":"Störf við strandveiðar, ýmist störf einstaklinga eða áhafna fiskveiðiskipa, fela í sér að veiða fisk eða aðrar vatnalífverur við strendur landsins og koma aflanum frá borði til sölu og dreifingar.","tasks":["að útbúa og gera við net og önnur veiðarfæri,","að velja fiskimið í samræmi við aflaheimildir og skipuleggja siglingaleið með notkun siglingatækja, áttavita og sjókorta,","að sigla fiskibátum til og frá fiskimiðum,","að leggja net og línur og draga inn afla,","að fanga ýmsar tegundir vatnalífvera við strendur og í grunnsævi,","að sinna viðhaldi á veiðarfærum og öðrum búnaði um borð,","að halda skrár yfir viðskipti, fiskveiðar, veðurfar og aðstæður á hafi og gera kostnaðar- og fjárhagsáætlanir,","að flokka og geyma afla í lestarrúmi,","að stýra fiskveiðum og hafa umsjón með verkefnum skipverja."],"example_titles":["störf við línuveiðar","trillusjómaður"],"notes":null}