{"code":"7126","title":"Störf við pípulagningar","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"712","title":"Störf við frágang bygginga","level":3},"description":"Störf við pípulagningar fela í sér að tengja, leggja og gera við vatnslagnir, niðurföll, rennur og tengda hluti sem og lagnir fyrir gas, frárennsli, skólp, hita-, kæli- og loftræstikerfi fyrir vökva- og loftbúnað.","tasks":["að skoða teikningar og tæknigögn,","að mæla, skera, beygja, tengja, setja saman, leggja og sinna viðhaldi og viðgerðum á rörum og tengihlutum frárennslis-, hitunar-, loftræsti-, vatnsveitu- og skólpkerfum,","að setja upp gastæki, uppþvottavélar, vatnshitara, vaska og salerni,","að leggja rör í skurði fyrir holræsi, frárennsliskerfi eða stofnlagnir í vatnsveitu eða í öðrum tilgangi,","að skoða og prófa kerfi og rör sem sett hafa verið upp með þrýstimælingu, vatnsþrýstingsprófun eða öðrum aðferðum,","að leggja vatnshitakerfi innanhúss, svo sem ofnakerfi og gólfhitalagnir,","að setja upp og stilla búnað í tækjaklefum."],"example_titles":["pípari"],"notes":null}