{"code":"7222","title":"Störf við verkfærasmíði","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"722","title":"Störf við járn- og vélsmíði","level":3},"description":"Störf við verkfærasmíði fela í sér að búa til og gera við sérsmíðuð og sérhæfð verkfæri, byssur, lása, mót, íhluti vélbúnaðar og aðra hluti úr málmi með því að nota hand- og vélaverkfæri.","tasks":["að lesa og túlka teikningar og tæknigögn fyrir verkfæri, mót, frumgerðir eða líkön,","að reikna út mál, stærðir, lögun og þolmörk samsetninga á grundvelli tæknigagna,","að setja upp, starfrækja og sinna viðhaldi á hefðbundnum og tölvustýrðum vélaverkfærum til að skera, snúa, hefla, bora og móta smíðisgripi eftir máli og áferð,","að gera við og breyta skotvopnum,","að framleiða, setja saman, gera við og setja upp lása eða hluta þeirra,","að framleiða og gera við málmsnið fyrir undirbúning málmsteypumóta."],"example_titles":["lásasmiður","verkfærasmiður"],"notes":null}