{"code":"7232","title":"Störf við flugvirkjun","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"723","title":"Störf við uppsetningu og viðgerðir á vélum","level":3},"description":"Störf við flugvirkjun fela í sér að sinna viðhaldi og viðgerðum og framkvæma viðhaldsskoðun á hreyflum loftfara, flugskrokkum, þyrlum, vökvaknúnum kerfum og þrýstiloftskerfum.","tasks":["að skoða, prófa og sinna viðhaldi á hreyflum loftfara,","að skipta um íhluti véla eða vélar í heild sinni,","að skoða flugskrokka og íhluti loftfara, þ.m.t. lendingarbúnað, vökvaþrýstikerfi og afísingarbúnað til að greina slit, sprungur, bresti, leka og önnur vandamál,","að sinna viðhaldi og viðgerðum og framkvæma viðhaldsskoðanir, breyta og prófa burðarvirki, vélræn kerfi og vökvaþrýstikerfi loftfara,","að viðhalda, gera við og endursmíða burðarvirki loftfara, íhluta, stoðbúnaðar, vökvaþrýstikerfis, súrefniskerfa og eldsneytiskerfa,","að yfirfara unnið verk og votta að viðhald uppfylli staðla og að loftfar sé tilbúið til rekstrar,","að halda skrár yfir viðgerðir og viðhald loftfara,","að setja upp og prófa rafmagns- og rafeindaíhluti, samsetningar og kerfi í loftförum,","að tengja íhluti við samstæður eins og fjarskiptakerfi, stjórntæki, segulkveikjur og kerfi til eldsneytistöku á flugi."],"example_titles":["flugvirki"],"notes":null}