{"code":"7311","title":"Störf við fíntækjasmíði","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"731","title":"Störf við handverk og hönnun","level":3},"description":"Störf við fíntækjasmíði fela í sér að smíða, gera við, sinna viðhaldi á, stilla og setja upp vélvirk úr og klukkur, siglinga-, veður- og sjóntæki og önnur fíntæki og búnað.","tasks":["að gera við, hreinsa og stilla gangvirki eins og úr og klukkur,","að prófa og stilla nákvæmni voga, mæla, álestrartækja eða annarra skráningar eða stjórntækja til að finna galla og tryggja samræmi við staðla,","að stilla stjórntæki eða vogir með því að nota handverkfæri, tölvu eða rafeindatæki,","að skoða íhluti, tengingar og drifbúnað til að greina galla,","að setja saman, prófa og stilla stjórntæki og búnað á borð við loftvogir, stjórnloka, rakamæla, hraðamæla, snúningshraðamæla og hitastilla,","að gera við og stilla sjóntæki eins og smásjár, sjónauka og sextanta."],"example_titles":["fíntækjasmiður","sjóntækjasmiður","úrsmiður"],"notes":null}