{"code":"7316","title":"Störf við skiltagerð, skrautmálun og ristun","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"731","title":"Störf við handverk og hönnun","level":3},"description":"Störf við skiltagerð, skrautmálun og ristun fela í sér að skreyta vörur og muni úr viði, málmi, textílefnum, gleri, keramik og öðrum efnum.","tasks":["að mála og skreyta keramik- og glervörur fríhendis,","að samþætta sjónræna þætti eins og línur, rými, lit og fjarvídd fyrir framsetningu hugmynda,","að hanna og mála skilti,","að gera skissur eða draga útlínur hönnunar eða bókstafa á smíðisgripi eða snið til að gera mynstur eða stensla,","að hanna mynstur eða letur til að mála á smíðisgripi eins og skilti, glervörur, leirvörur eða sinkplötur,","að nota hugbúnað og vélar til að búa til útskornar myndir í þrívídd,","að skrifa, mála eða prenta skilti eða borða sem notaðir eru í útstillingum eða öðrum tilgangi,","að skera út bókstafi og skilti fyrir útstillingar, úr gifsplötum eða pappa, í höndum eða vélum,","að æta skrauthönnun, kvarðamerki og aðrar myndir á glerhluti."],"example_titles":["glermálari","leirmálari","starfsfólk við handskreytingu skilta"],"notes":null}