{"code":"7412","title":"Störf við rafvélavirkjun","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"741","title":"Störf við uppsetningu og viðgerðir raflagna og rafvéla","level":3},"description":"Störf við rafvélavirkjun fela í sér að máta, setja upp, stilla og gera við rafknúinn vélbúnað og raftækjabúnað, svo sem í byggingum, verksmiðjum og verkstæðum og gera við rafknúin tæki eins og hjólastóla og rafskútur.","tasks":["að setja upp, stilla, gera við og annast viðhald á ýmsum rafknúnum vélbúnaði, mótorum, rafölum, rofa- og stjórnbúnaði, tækjum eða rafhlutum í lyftum og skyldum búnaði,","að setja upp, stilla og gera við rafbúnað í heimilistækjum og iðnaðarvélum,","að setja upp, tengja, prufukeyra, sinna viðhaldi á og breyta rafbúnaði, leiðslum og stjórnbúnaði,","að hanna, setja upp, annast viðhald á, yfirfara og gera við raf- og vökvaknúnar lyftur, rúllustiga, og annan lyftibúnað,","að tengja rafkerfi við aflgjafa."],"example_titles":["rafvélavirki"],"notes":null}