{"code":"7531","title":"Störf við klæð- og feldskurð, kjóla- og hattagerð","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"753","title":"Störf við fataiðn og tengd störf","level":3},"description":"Störf við klæð- og feldskurð, kjóla- og hattagerð fela í sér að framleiða, máta, breyta og lagfæra sérsniðinn eða handgerðan fatnað, sérsníða klæðnað eins og jakkaföt, yfirhafnir og kjóla úr textílefnum, þunnu leðri, loðfeldi og öðrum efnum eða framleiða hatta eða hárkollur eftir lýsingum viðskiptavina og fataframleiðenda.","tasks":["að framleiða yfirhafnir, jakkaföt, pils, skyrtur, blússur, undirfatnað, lífstykki, hatta, hárkollur og svipaðar flíkur,","að velja textílefni fyrir flíkur úr leðri eða loðfeldi eftir stærð, lit, áferð og gæðum sem óskað er eftir og sníða þær til samkvæmt hönnun,","að velja og breyta sniðum til samræmis við vaxtarlag eða óskir viðskiptavina og fataframleiðenda og gera fatabreytingar,","að máta, breyta og lagfæra sérsniðinn fatnað, kjóla, frakka og aðrar flíkur saumaðar eftir máli, samkvæmt kröfum viðskiptavina,","að búa til og sjá um búninga sem notaðir eru í leiksýningum, sjónvarpsútsendingum og kvikmyndum,","að sauma borða eða klæði til að mynda gerviblóm eða slaufur umhverfis kolla og brúnir til að móta og skreyta hatta,","að sauma hár saman til að búa til hárkollur,","að sauma, breyta, endurhanna og gera við flíkur úr loðfeldi og aðrar loðskinnsvörur,","að endurvinna loðfeldi eða leður úr gömlum yfirhöfnum, festa fóður í yfirhafnir úr loðfeldi og snyrta flíkur úr loðfeldi."],"example_titles":["feldskeri","kjólameistari","klæðskeri","starfsfólk við hattagerð","starfsfólk við hárkollugerð","starfsfólk við leikbúningagerð"],"notes":null}