{"code":"7532","title":"Störf við sniðagerð og sníðaskurð","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"753","title":"Störf við fataiðn og tengd störf","level":3},"description":"Störf við sniðagerð og sníðaskurð fela í sér að búa til nákvæm snið fyrir framleiðslu fatnaðar og annarra vara úr textílefnum, leðri eða loðfeldi, að merkja, skera, móta og snyrta textílefni, þunnt leður og önnur efni eftir sniðum, teikningu eða gæðalýsingu.","tasks":["að búa til grunnsnið fyrir hverja fatastærð, með því að nota gröf, mótunartæki, tölvur eða flokkunartæki,","að gera verkteikningu eða hluta sniða fyrir tiltekna hönnun fatnaðar með hjálp tölvu,","að reikna út stærðarmál sniða eftir fatastærð með hliðsjón af teygjanleika efna,","að staðsetja snið eða mæla efni fyrir skurð,","að prófa snið með því að búa til og máta sýnishorn af flíkum,","að setja snið ofan á lög af efnum og skera þau til eftir sniði, með raf- eða handknúnum hnífum, skærum eða skurðarbúnaði sem stjórnað er með tölvum,","að skera til hluta efnis eða loðfelds fyrir gerð flíka og annarra loðskinnsvara,","að staðsetja leður á skurðarflöt véla, hámarka nýtingu eftir áferð, götum og strekkingu skinns,","að sinna sniðagerð, merkingum og skurðarvinnu við framleiðslu annarra vara eins og áklæði húsgagna og vörum úr striga."],"example_titles":["starfsfólk við sniðagerð","sníðameistari"],"notes":null}