{"code":"7533","title":"Störf við hand- og útsaum","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"753","title":"Störf við fataiðn og tengd störf","level":3},"description":"Störf við hand- og útsaum fela í sér að sauma saman, gera við, endurnýja og skreyta flíkur, hanska og aðrar vörur úr textílefnum, loðfeldi, þunnu leðri og öðrum efnum og sauma tjöld, segl, skyggni og segldúka. Störfin felast aðallega í að vinna efni í höndum, með nál og þræði en kunna einnig að fela í sér verkefni þar sem notuð er saumavél.","tasks":["að gera við gallaða eða skemmda hluta klæða í höndum,","að fjarlægja sauma úr flíkum sem á að breyta með því að nota sprettihnífa eða önnur áhöld,","að sauma bætur yfir göt, sauma saman rifur og saumsprettur eða stoppa í vörur með nál og þræði,","að handsauma skrauthönnun samkvæmt mynstrum sem eru stimpluð, prentuð eða stensluð á efni með því að nota nál og litaðan þráð,","að sauma eða líma skrautborða á vörur eins og hatta, húfur og önnur höfuðföt,","að sauma og setja saman þykk klæði, striga og svipað efni í segl, skyggni, segldúka og tjöld."],"example_titles":["starfsfólk við handsaum"],"notes":null}