{"code":"7536","title":"Störf við töskugerð og skósmíði","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"753","title":"Störf við fataiðn og tengd störf","level":3},"description":"Störf við töskugerð og skósmíði fela í sér að smíða, breyta og gera við skófatnað eða bæklunarskó og vörur úr náttúrulegu leðri eða gervileðri eins og ferðatöskur, handtöskur og belti (að undanskildum leðurflíkum, höttum og hönskum) eða taka þátt í framleiðslu á skófatnaði og tengdum vörum.","tasks":["að smíða, breyta og gera við staðlaðan skófatnað til að mæta einstaklingskröfum,","að smíða, breyta og gera við bæklunar- eða lækningaskó samkvæmt forskriftum lækna,","að gera við belti, töskur, veski og svipaða fylgihluti,","að gera afsteypur af fótum og útbúa innlegg,","að fara yfir teikningar og önnur tæknigögn og smíða skófatnað samkvæmt þörfum viðskiptavina,","að meta áferð, lit og styrk leðurs,","að skera út, móta og bólstra hluta fyrir framleiðslu leðurvara,","að smíða og gera við vörur eins og hnakka og aktygi fyrir dýr, ferðatöskur, handtöskur, skjalatöskur, leðurpoka, belti og aðra aukahluti."],"example_titles":["bæklunarskósmiður","söðlasmiður","skósmiður","skóari"],"notes":null}