{"code":"7541","title":"Störf við köfun","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"754","title":"Störf við annan iðnað","level":3},"description":"Störf við köfun fela í sér að starfa undir yfirborði vatns eða sjávar, með eða án öndunarbúnaðar, skoða, setja upp, gera við og fjarlægja búnað og mannvirki, gera prófanir eða tilraunir, koma fyrir sprengiefni, ljósmynda mannvirki eða sjávarlífverur, fanga sjávar- eða vatnalífverur í hagnaðar- eða rannsóknarskyni og bjarga mannslífum og öðrum verðmætum.","tasks":["að gera varúðarráðstafanir eins og að afla upplýsinga um köfunarverkefni og umhverfisaðstæður,","að vakta tíma og dýpt þegar kafað er,","að yfirfara og viðhalda köfunarbúnaði,","að starfa undir yfirborði vatns við að byggja og gera við brýr, bryggjur og stoðir hafnarveggja,","að leita að skemmdum og sinna minni háttar viðgerðum á skipsskrokkum og neðansjávarmannvirkjum,","að fjarlægja hindranir undir yfirborði vatns eða sjávar,","að bora holur fyrir neðansjávarsprengiefni,","að sinna björgunarstörfum undir yfirborði vatns eða sjávar,","að safna skelfiski og öðrum sjávar- eða vatnalífverum."],"example_titles":["kafari"],"notes":null}