{"code":"8182","title":"Störf við vélar í kyndiklefum og vélarrýmum","level":4,"source_system":"ISTARF21","parent":{"code":"818","title":"Önnur störf við staðbundnar vélar","level":3},"description":"Störf við vélar í kyndiklefum og vélarrýmum fela í sér að vakta, sinna viðhaldi á og starfrækja ýmsar gerðir gufuvéla, katla, túrbína og aukabúnaðar til framleiðslu orku og veituþjónustu fyrir byggingar, á vinnusvæðum eða um borð í skipum eða bátum.","tasks":["að starfrækja, hreinsa, smyrja og sinna eftirliti með gufuvélum, kötlum og aukabúnaði á borð við dælur, þjöppur og loftræstibúnað fyrir byggingar, skip eða loftknúin verkfæri,","að greina og skrá aflestur af mælitækjum, sinna bilanaleit og minni háttar viðgerðum,","að sinna handvirkri eða vélrænni kyndingu kolaofna og gas- eða olíuknúinna katla,","að vakta vél, vélbúnað og álestrartæki um borð í skipum, skrá breytur, tilkynna um frávik og skoða afköst búnaðar,","að starfrækja og sinna viðhaldi vökvadælna og -loka."],"example_titles":["kyndari við gufuvél"],"notes":null}