UT rannsóknarstjóri
ISCO 1223
UST rannsóknarstjórar skipuleggja, stjórna og fylgjast með rannsóknastarfsemi og leggja mat á þróun á sviði upplýsinga- og fjarskiptatæknisviðs til að meta mikilvægi þeirra. Þeir hanna einnig og hafa umsjón með þjálfun starfsfólks að því er varðar notkun nýrrar tækni og mæla með leiðum til að innleiða nýjar vörur og lausnir sem munu hámarka ávinning fyrirtækis/stofnunar.
Yfirmaður vörustjórnunar
ISCO 1223
Yfirmenn vörustjórnunar hafa umsjón með vörustefnu fyrirtækis, skilgreina framtíðarsýn vöru, forgangsraða þörfum viðskiptavina og hanna kortlagningu vöru. Helstu drifkraftar framleiðsluferla á sviði nýsköpunar og tekjuaukningu, þeir bera ábyrgð á öllu vöruþróunarferlinu og vörutengdri starfsemi sem felur í sér hönnun, útfærslu, mótun vörustefnu, sköpun fjölþætts samstarfs og kynningu á nýjum vörum. Þar að auki leiða þau vörustjórnunarteymi stofnunarinnar og vinna náið með markaðsdeildinni.
nýsköpunarsérfræðingur
ISCO 1223
Nýsköpunarfulltrúar eru tengslin milli iðnaðarframleiðslu og nýsköpunaráætlana fyrirtækis. Þau vinna að því að bæta viðbrögð fyrirtækisins við skyndilegum breytingum á mörkuðum með nýsköpun með það að markmiði að koma í veg fyrir og takast á við röskun í viðskiptum. Þau stjórna og þjálfa hóp starfsmanna sem leggja áherslu á nýsköpunarverkefni eða -hugmyndir. Þau hafa umsjón með og skipuleggja breytingar á vörum og ferlum til að auka skilvirkni starfseminnar og hjálpa fyrirtækinu að vera samkeppnishæfari. Þau vinna við hlið annarra framkvæmdastjóra til að tryggja að þeir myndu styðja frumkvæði sem miðar að nýsköpun.
rannsókna- og þróunarstjóri
ISCO 1223
Rannsóknar- og þróunarstjórar samræma tilraunir vísindamanna, rannsakenda, vöruhönnuði, og markaðsrannsóknarmanna til þess að skapa nýjar vörur, bæta núverandi vörur eða aðra rannsóknarvinnu, þar með talið vísandarannsóknir. Þeir stýra og skipuleggja rannsóknar- og þróunarstarfsemi fyrirtækis/stofnunar, tilgreina markmið og kröfur samkvæmt fjárhagsáætlun og stjórna starfsfólki.
rannsóknarstjóri
ISCO 1223
Rannsóknarstjóri hafa umsjón með rannsóknar- og þróunarstarfsemi rannsóknarstöðvar eða skipulags eða háskóla. Þeir styðja við starfsfólk, samræma vinnu og fylgjast með starfsfólki og verkefnum. Þeir geta starfað í mörgum mismunandi geirum, s.s. á sviði íefna, tækni- og lífvísinda. Rannsóknarstjórar geta einnig veitt ráðgjöf um rannsóknir og framkvæmd þeirra.
vörustjóri
ISCO 1223
Vörustjórar hafa með höndum stjórnun á vistferli vöru. Þeir rannsaka og þróa nýjar vörur auk þess að sinna þeim sem fyrir eru með markaðsrannsóknum og stefnumótandi áætlanagerð. Vörustjórar sinna markaðssetningarmálum og skipulagsstarfsemi til að auka hagnað.
vöruþróunarstjóri
ISCO 1223
Vöruþróunarstjórar samræma þróun á nýjum vörum frá upphafi til enda. Þeir sitja kynningar og hefjast handa við að sjá fyrir hina nýju vöru með hönnun, tæknilega þætti og kostnað í huga. Þeir stunda rannsóknir á þörfum markaðarins og skapa frumgerðir nýrra vara þar sem eru ónýtt markaðstækifæri. Vöruþróunarstjórar bæta einnig og auka tæknileg gæði þeirra.
vöruþróunarstjóri leikja og spila
ISCO 1223
Vöruþróunarstjórar leikja og spila hafa umsjón með og samræma sköpun, þróun, dreifingu og sölu á leikjum. Þeir hafa samband við framleiðendur til að tryggja framleiðslu á leikjum.
vöruþróunarstjóri trygginga
ISCO 1223
Vöruþróunarstjórar trygginga setja af stað og leiða þróun nýrra vátryggingavara, á grundvelli stefnu vöruævi og hina almennu tryggingaáætlun. Þeir samræma einnig markaðssetningu og söluathafnir sem tengjast sérstökum vátryggingaafurðum félagsins. Vöruþróunarstjórar trygginga tilkynna sölustjórum sínum (eða söludeildinni) um nýlega þróaðar vátryggingarvörur.
þróunarstjóri fatalínu
ISCO 1223
Þróunarstjórar fatalínu skilgreina vöruhugtök sem eru í samræmi við markhópsneytendur og heildarmarkaðsáætlun. Þeir fá vísindalegar niðurstöður og -forskriftir til að stýra kynningu og útfærslu á öllum viðeigandi árstíðabundnum og stefnumótandi hugmyndum, þ.m.t. dreifingar eftir leiðum, vörum, litainnleiðingu, og úrval varnings. Þeir tryggja gerð og framkvæmd innan fjárhagsáætlunar. Þeir stjórna og framfylgja vörulínunni og vöruæfi flokksins frá því að greina hugtaks og gegnum sölu og dreifingu, framlag til rannsókna á markaði, stefnum í iðnaðinum til að hafa áhrif á hugtök flokka og vörur.
þróunarstjóri framleiðslu leðurvöru
ISCO 1223
Þróunarstjórar leðurvöruframleiðslu samræma leðurvöruhönnun og vöruþróunarferli í því skyni að uppfylla kröfur varðandi markaðsetningu, lokafresti, skipulagslegar kröfur og stefnur félagsins. Þeir hafa samskipti og samstarf með öðrum þverfaglegum teymum eða sérfræðingum sem taka þátt í framleiðslu á leðurvörum, s.s. birgðastjórnun og markaðssetningu, kostnaðarútreikning, skipulagningu, framleiðslu og gæðatryggingu. Þeir bera ábyrgð á því að þróun leðurvörulínu sem felur í sér athafnir eins og að rekja þróun tísku, endurskoða hönnunarforskriftir til að koma til móts við hönnunarsýn, framleiðsluumhverfið og arðsemi fyrirtækjanna.
þróunarstjóri skóbúnaðar
ISCO 1223
Þróunarstjórar í skóframleiðslu samræma hönnun skófatnaðar og vöru- og vörulínuþróunarferlið og virða í því sambandi hönnunarforskriftir og tímamörk og uppfylla kröfur varðandi áætlanir og stefnu félagsins. Þeir fylgjast með þróun tískunnar og endurskoða hönnunarforskriftir til að mæta hönnunarsýn, framleiðsluumhverfi og fjárhagslegum markmiðum félagsins.