forstöðumaður félagsþjónustu
ISCO 1344
Forstöðumenn félagsþjónustu bera ábyrgð á stefnumótandi og rekstrarlegri forystu og stjórnun starfsfólks og tilfanga innan og eða í gegnum félagsþjónustu. Þeir bera ábyrgð á framkvæmd löggjafar og stefnu sem varðar t.d. ákvarðanir um berskjaldaða einstaklinga. Þeir kynna félagsráðgjöf og félagsleg umönnunargildi og siðfræði, jafnrétti og fjölbreytni, ásamt viðeigandi viðmiðunaraðferðum. Þeir bera ábyrgð á samskiptum við aðra sérfræðinga í sakamálum, á sviði menntunar og heilbrigðismála. Þeir geta borið ábyrgð á því að leggja sitt af mörkum til stefnumótunar á þróun staðar- og landsstefnum.
framkvæmdarstjóri félagsmiðstöðvar
ISCO 1344
Framkvæmdastjórar miðstöðva fyrir ungt fólk skipuleggja og hafa umsjón með rekstri miðstöðva fyrir börn og unglinga sem sinna umönnunnar- og ráðgjafarþjónustu. Þeir meta þarfir unglinga í samfélaginu, þróa og útfæra kennsluaðferðir og þróa áætlanir til að bæta æskulýðsumönnun við miðstöðina.
framkvæmdastjóri félagsíbúða
ISCO 1344
Framkvæmdastjórar félagsíbúða þróa áætlanir til að bæta húsnæðisáætlanir í samfélagi, svo og að sjá til þess að félagsíbúðir séu látnar þeim í té sem hafa þörf á þeim. Þeir tilgreina húsnæðisþarfir og málefni, og hafa umsjón með úthlutun úrræða. Þeir hafa einnig samskipti við stofnanir eða fyrirtæki, sem taka þátt í að koma á fót félagsíbúðum og félagsmálastofnanir.
frístundaleiðbeinandi
ISCO 1344
Stjórnendur æskulýðsstarfs þróa og hrinda í framkvæmd áætlunum og stefnumálum sem miða að því að bæta og tryggja velferð þeirra. Þeir greiða fyrir samskiptum við og milli mennta-, tómstundastarfs-, ráðgjafar- eða annarra stofnana tengdum ungu fólki, skipuleggja viðburði fyrir ungmenni og fjölskyldur, og stuðla að félagslegum hreyfanleika og vitund.