efnafræðingur
ISCO 2113
Efnafræðingar framkvæma rannsóknir á rannsóknarstofum með því að prófa og greina efnasamsetningu efnis. Þeir þýða þessar niðurstöður yfir í iðnaðarframleiðsluferla sem eru síðan notaðir við þróun eða betrumbætur á vörum. Efnafræðingar prófa einnig gæði framleiddra vara og umhverfisáhrif þeirra.
efnagreinandi
ISCO 2113
Efnagreinar rannsaka og lýsa efnafræðilegri samsetningu efna. Auk þess draga þeir ályktanir varðandi hegðun slíkra efni við ólík skilyrði. Efnagreinar gegna mikilvægu hlutverki í að skoða tengslin milli efnafræði og umhverfis, fæðu, eldsneytis og lyfja. Þeir nota ýmsar tækniaðferðir, svo sem raflitskiljun, gas- og háafkastavökvalitskiljun og litrófsgreiningu.
efnagreinir / efnafræðingur
ISCO 2113
Efnagreinar / efnafræðingar eru ábyrgir fyrir hraðgreiningu á staðnum á prófunarhlutum úr málmi í málmframleiðslustöðinni til þess að leiðrétta í tæka tíð efnasamsetningu málmsins á fljótandi formi.
efnasérfræðingur í smyrslagerð
ISCO 2113
Efnasérfræðingar í smyrslagerð þróa efnavörur samkvæmt þörfum og væntingum viðskiptavina. Þeir vinna að því að þróa formúlur og ferli við samsetningu, svo og mat á skilvirkni og afköstum samsetninga.
ilmefnafræðingur
ISCO 2113
Ilmefnafræðingar þróa og bæta ilmefni, með því að setja saman, prófa og greina ilmefni og innihaldsefni þeirra, þannig að fullunna varan uppfylli væntingar og þarfir viðskiptavina.
skynjunarvísindamaður
ISCO 2113
Skynjunarvísindamenn framkvæma skynjunargreiningu til að setja saman eða bæta bragðefni og ilmefni fyrir matvæla-, drykkjarvöru- og snyrtivöruiðnaðinn. Þeir byggja bragð -og ilmþróun á skynfæra- og neytendarannsóknum. Skynjunarvísindamenn annast rannsóknir og greina tölfræðigögn til að uppfylla væntingar viðskiptamanna.
snyrtivöruefnafræðingur
ISCO 2113
Snyrtivöruefnafræðingar þróa formúlur til að útbúa og prófa nýjar snyrtivörur og bæta fyrirliggjandi snyrtivörur, s.s. ilmefni, varalit, vatnsheld smyrsl og farða, hárlit, sápu og hreinsiefni með sérstaka eiginleika, staðbundin lyf eða fæðubótarefni.
textílefnafræðingur
ISCO 2113
Textílefnafræðingur samræma og hafa eftirlit með íðefnaferlum fyrir spunaefni eins og garn og efnamyndun á borð við litun og frágang.