ÍSTARF21 · Stig 4 · starfaflokkur

2149

Sérfræðistörf í verkfræði (að undanskildum raftæknigreinum) ót.a.s.

raftæknigreinum) ót.a.s. Undir þennan starfaflokk falla sérfræðistörf í verkfræði sem ekki eru flokkuð annars staðar í klasa 214: Sérfræðistörf í verkfræði (að undanskildum raftæknigreinum), eða í klasa 215: Sérfræðistörf í verkfræði innan raftæknigreina. Störf í þessum flokki felast meðal annars í að sinna greiningum, veita ráðgjöf eða þróa verklag.

Verkefni

Dæmi um starfsheiti

líftæknifræðingur

ESCO starfsheiti (41)

efnisverkfræðingur

ISCO 2149

Efnisverkfræðingar rannsaka og hanna ný eða betrumbætt efni fyrir fjölbreytta notkun. Þeir greina samsetningu efna, gera tilraunir og þróa ný efni í sértækum iðnaði sem getur verið allt frá gúmmíi til textílefnis, glers, málma og íðefna. Þeir veita ráðgjöf við mat á tjóni, gæðatryggingar og endurvinnslu efna.

eftirlitsmaður aðfanga

ISCO 2149

Eftirlitsmenn aðfanga bera ábyrgð á allri kostnaðarstjórnun við smíði og byggingu verkefnis frá upphafi til afhendingar þess. Þeir keppa að því að nýta úrræði með skilvirkum hætti jafnframt því að hafa eftirlit með gæðum, gæðakröfum og kröfum viðskiptavinar.

eldvarnasérfræðingur

ISCO 2149

Eldvarnarverkfræðingar kanna, hanna og þróa nýstárlegar lausnir sem miða að því að koma í veg fyrir eld og vernda fólk á náttúrusvæðum og á borgarsvæðum. Þeir leggja til viðeigandi efni, sem eru ætluð til byggingar, fatnaðar eða annarrar notkunar og þau hönnunarkerfi sem miða að því að koma í veg fyrir bruna eða útbreiðslu þess.

heilsu- og öryggisverkfræðingur

ISCO 2149

Heilsu og öryggisverkfræðingar hanna hluti og forrit með því að sameina meginreglur í verkfræði og heilsu- og öryggiskröfur. Þeir sjá fyrir sér vernd og vellíðan fólks sem notar þá hluti sem eru hannaðir eða starfa í tengslum við hannaðar heilbrigðis- og öryggisáætlanir. Þeir meta aðstöðu og áhættu sem henni fylgir (t.d. aðskotaefni, vinnuvistfræði, meðhöndlun hættulegra efna o.s.frv.) til að hanna og bæta heilbrigðis- og öryggisráðstafanir.

hljómburðarverkfræðingur

ISCO 2149

Hljómburðarverkfræðingar rannsaka og beita hljóðvísindum til ýmissa nota. Þeir vinna á ýmsum sviðum, t.d. við ráðgjöf um hljómburð og þá þætti sem hafa áhrif á flutning hljóðs í listflutningi eða upptökum. Þeir geta einnig haft samráð um hávaðastig vegna þeirrar starfsemi sem krefjast þess að farið sé að viðkomandi stöðlum.

hönnunartæknimaður

ISCO 2149

Hönnunarverkfræðingar þróa nýja hugtaka- og nákvæmnishönnun. Þeir skapa útlit þessara hugmynda eða vara og kerfin sem notuð eru til að búa þau til. Hönnunarverkfræðingar starfa með verkfræðingum og markaðsfræðingum til að auka virkni og skilvirkni búnaðar sem fyrir er.

jarðvarmaverkfræðingur

ISCO 2149

Jarðvarmaverkfræðingar rannsaka, hanna, skipuleggja og stýra ferlum og búnaði sem breyta varmaorku í rafmagn eða hitun eða kælingu. Þeir nýta náttúrulega varmaorkugjafa úr jörðinni til að framleiða orku, til að kæla iðnaðar-, verslunar- og íbúðarhúsnæði á sumrin og hita á vetrum. Jarðvarmaverkfræðingar þróa áætlanir til að ná fram skilvirkari orkuframleiðslu og greina afleiðingar orkuvinnslunnar á umhverfið.

kjarnorkuverkfræðingur

ISCO 2149

Kjarnorkuverkfræðingar hanna og skipuleggja verkfræðibúnað og ferli í kjarnorkuverum og svæðum sem tengjast þeim. Þeir taka þátt í verkfræðistarfsemi sem varðar kjarnorkuver og þróa áhættulausnir.

ljóseindaverkfræðingur

ISCO 2149

Ljóseindaverkfræðingar annast framleiðslu, flutning, ummyndun og greiningu ljóss. Þeir gera rannsóknir, hanna, setja saman, prófa og nýta íhluti eða kerfi á mörgum sviðum, allt frá sjónrænum samskiptum til lækningatækja, efnisvinnslu eða skynjaratækni.

ljósfræðiverkfræðingur

ISCO 2149

Ljósfræðiverkfræðingar hanna og þróa ólíka iðnnotkun með ljóskerfum. Þeir búa yfir þekkingu á ljósi, meginreglum ljósflutnings og ljóskerfa til að móta hönnun tækja á borð við smásjár, linsur, sjónauka og önnur sjóntæki.

líftækniverkfræðingur

ISCO 2149

Líftækniverkfræðingar samræma þekkingu á verkfræðilögmálum og líffræðilegum niðurstöðum í því skyni að þróa læknismeðferð, lyf og til almennrar heilbrigðisþjónustu. Þeir geta þróað lausnir allt frá endurbótum á efnisþáttum hefðbundinna lyfja til ígræðsluþróunar og vefjameðferðar.

líftækniverkfræðingur

ISCO 2149

Líftækniverkfræðingar sameina nýjustu og fullkomnustu tækni á sviði líffræði með verkfræðirökum til að þróa lausnir sem miða að því að efla velferð samfélagsins. Þeir geta þróað kerfi til úrbóta fyrir nýtingu náttúruauðlinda, landbúnað, matvælaframleiðslu, breytingu á erfðaefni og notkun í efnahagslegu tilliti.

nanóverkfræðingur

ISCO 2149

Nanóverkfræðingar sameina vísindalega þekkingu á frumeinda- og sameindaögnum við tæknilegar meginreglur um notkun á ýmsum sviðum. Þeir beita niðurstöðum í efnafræði, líffræði, efnaverkfræði o.s.frv. Þeir nota tækniþekkingu til að bæta notkun sem þegar er fyrir hendi eða til að skapa örhluti.

niðurtökuverkfræðingur

ISCO 2149

Niðurtökuverkfræðingar rannsaka og skipuleggja bestu leiðirnar til að taka í sundur iðnbúnað, vélar og byggingar sem hafa lokið líftíma sínum. Þeir greina þá vinnu sem þörf er á og skipuleggja ýmsar aðgerðir. Þeir útvega hópstjórum leiðbeiningar og leiðbeina þeim við störf sín.

nýsköpunarverkfræðingur

ISCO 2149

Nýsköpunarverkfræðingar taka þátt í áætlanagerð, skipulagningu og framkvæmd nýsköpunarverkefna. Þau hanna og þróa nýjar vörur og frumgerðir sem fela í sér tækni, hagræðingu og sjálfvirkniferli sem hvetja til nýsköpunarvaxtar innan starfseminnar. Nýsköpunarverkfræðingar greina hugsanlega þróunarmöguleika, einkaleyfistækifæri, nýsköpunarhneigð og þarfir viðskiptavina.

orkukerfaverkfræðingur

ISCO 2149

Orkukerfaverkfræðingar hafa umsjón með orkuumbreytingu og dreifingarferlum. Þeir greina orkubirgðir og neyslunýtni og þróa nýjar aðferðir til að bæta núverandi ferla, að teknu tilliti til tækni- og fjárhagsþátta. Þeir rannsaka einnig umhverfisáhrif af notkun orku og sameina framleiðslu endurnýjanlegrar orku í núverandi orkukerfum.

orkuverkfræðingur

ISCO 2149

Orkuverkfræðingar hanna nýjar, skilvirkar og hreinar leiðir til að framleiða, breyta og dreifa orku til að auka umhverfislega sjálfbærni og orkunýtni. Þeir ná orku úr náttúruauðlindum, svo sem olíu eða gasi, eða endurnýjanlegum og sjálfbærum uppsprettum, á borð við vind- eða sólarorku.

prófunarverkfræðingur

ISCO 2149

Prófunarverkfræðingar skipuleggja og annast ítarlegar gæðaprófanir á ýmsum stigum hönnunarferlisins til að ganga úr skugga um að kerfin séu rétt sett upp og starfi rétt. Þeir greina gögn sem aflað hefur verið meðan á prófunum stendur og leggja fram skýrslur. Þeir bera einnig ábyrgð á öryggi prófunarstarfseminnar.

rannsóknarmaður textíls, leðurs og fótabúnaðar

ISCO 2149

Rannsakendur textíls, leðurs og fótabúnaðar sameina þekkingu á efnisvísindum, efnafræði, eðlisfræði, vinnslutækni, stjórnun og verkfræði í því skyni að stuðla að framtíðarnýjungum á textílsviði, fatnaði, leðri og skófatnaði. Þeir eiga samstarf í þverfaglegum verkefnum til þess að sameina niðurstöður ýmissa vísindasviða fyrir vöruþróun.

rannsóknarverkfræðingur

ISCO 2149

Rannsóknarverkfræðingar sameina rannsóknarfærni og þekkingu á grundvallaratriðum verkfræðinnar til að að aðstoða við þróun eða hönnun á nýjum vörum og tækni. Þeir gera einnig endurbætur á tækniaðferðum sem þegar eru fyrir hendi, sem og vélum og kerfum og skapa nýja tækni. Skyldur rannsóknarverkfræðinga eru háðar verkfræðigreininni og iðnaðinum sem þeir vinna í. Rannsóknarverkfræðingar vinna yfirleitt á skrifstofu eða rannsóknarstofu við að greina verkferli og framkvæma tilraunir.

reikniverkfræðingur

ISCO 2149

Reikniverkfræðingar draga ályktanir um raunveruleg kerfi, s.s. að því er varðar styrk, stöðugleika og endingu, með aðferðum sem eru gerðar á sýndarlíkönum. Þeir prófa einnig vinnsluferli.

ráðgjafi vegna einkaleyfa

ISCO 2149

Ráðgjafar vegna einkaleyfa veita fyrirtækjum ráðgjöf varðandi ýmsa þætti hugverkaréttarlaga. Þeir greina uppfinningar og rannsóknir á efnahagslegum möguleikum þeirra. Þeir hafa eftirlit með því hvort réttindi varðandi einkaleyfi hafi þegar verið gefin út um uppfinningu og sjá til þess að þau hafi ekki orðið fyrir áhrifum og ekki hafi verið brotið gegn þessum réttindum..

samhæfingarverkfræðingur

ISCO 2149

Samhæfingarverkfræðingar stefna að því að halda sem mestu samræmi við verkfræðiforskriftir. Þeir geta haft eftirlit með því að farið sé að tilskildum ákvæðum á fjölbreyttum sviðum, þ.m.t. véla-, raf- og rafeindatæknikerfum. Þeir tryggja að verkfræðin sé í samræmi við reglur, öryggisráðstafanir og innri tilskipanir.

samningaverkfræðingur

ISCO 2149

Samningaverkfræðingar sameina tækniþekkingu á samningum og lagalegum málefnum með skilningi á verkfræðiforskriftum og meginreglum. Þeir tryggja að báðir aðilar séu samstíga við þróun verkefnis og sjá til þess að allar tæknilegar forskriftir og efnisþættir séu eins og skilgreint er í samningum.

sérfræðingur í gæðastjórnun

ISCO 2149

Gæðaverkfræðingar skilgreina gæðastaðla í sköpun vöru eða þjónustu. Þeir gera athuganir á því hvort vörur og þjónusta séu í samræmi við gæðastaðla og samræmi gæðaframfarir.

sérfræðingur í sjálfvirkum akstri

ISCO 2149

Sérfræðingar í sjálfvirkum akstri hanna og hafa umsjón með starfsemi sjálfstýrðra ökutækja. Þeir safna gögnum um frammistöðu kerfa, gera prófanir á ökutækjunum og greina prófunargögn. Sérfræðingar í sjálfvirkum akstri kunna skil á mismunandi tækni sem notuð er í sjálfstýrðum bílum, bílkerfum og bíltækni.

sérfræðingur í áreiðanleika

ISCO 2149

Áreiðanleikaverðir tryggja að framleiðsluferli eða -kerfi sé áreiðanlegt, tiltækt og að unnt sé að sinna viðhaldi. Störf þeirra beinast að því að bæta getu til starfsemi án hléa og þegar þörf er á, og að gera auðveldara að gera við, skipta út eða uppfæra vöruna.

sérhæfður orkuverkfræðingur í endurnýjanlegri orku

ISCO 2149

Orkuverkfræðingar í endurnýjanlegri orku rannsaka aðra kosti í orkumálum til að hanna kerfi sem framleiða endurnýjanlega orku. Þeir leitast við að hámarka orkuframleiðslu með endurnýjanlegum orkugjöfum og minnka framleiðslukostnað og álag á umhverfið. Þeir hanna kerfi þar sem lögð er áhersla á sjálfbærni og skilvirkni orku.

sólarorkuverkfræðingur

ISCO 2149

Sólarorkuverkfræðingar hanna kerfi sem nýta sólarorku til raforkuframleiðslu, svo sem ljósraforkukerfi. Þeir hanna og byggja kerfi sem hámarka orkunýtingu úr sólarorku og sjálfbærni framleiðsluferlisins fyrir búnað sem nýtir sólarorku.

tækniverkfræðingur

ISCO 2149

Tækniverkfræðingar meðhöndla tæknilegar kröfur, stjórnun og hönnun til að þróa ýmis verkfræðibúnað, t.d. kerfi, nýja vöruhönnun eða umbætur á ferlum. Þeir bera ábyrgð á að innleiðingu hönnunar eða endurbóta á ferlinu, veita tæknilegan stuðning við framleiðsluvörur, svör við spurningum um tæknilega virkni og aðstoða söluhópinn.

varmaverkfræðingur

ISCO 2149

Varmaverkfræðingar hanna kerfi sem veita hitun eða kælingu með varmafræði sem flytja varma eða orku í gegnum vökva og lofttegundir. Þeir smíða einnig þessi kerfi og framkvæma prófanir til að tryggja rétta virkni.

verkfræðingur við uppsetningu kerfa

ISCO 2149

Verkfræðingar við uppsetningu kerfa hafa umsjón með og stjórna uppsetningu mannvirkja sem eru oft mörg ár í hönnun og uppbyggingu. Þeir tryggja öryggi, forðast áhættu og miða að því að halda kostnaði í lágmarki. Verkfræðingar við uppsetningu kerfa búa einnig til byggingarhönnun kerfa og annast prófun á uppsetningarkerfum. Þeir ákvarða það efni sem þarf til að smíða þessi kerfi og kostnað og nota hugbúnað tölvuhönnunarforrit (CAD) til að hanna þessi kerfi.

verkfræðingur á sviði endurnýjanlegrar orku undan ströndum

ISCO 2149

Verkfræðingar á sviði endurnýjanlegrar orku undan ströndum hanna og hafa eftirlit með uppsetningu orkubúa og búnaðar á hafi úti. Þeir kanna og prófa staðsetningar til þess að finna ákjósanlegasta staðinn með tilliti til afkasta, sjá um að framkvæmd hönnunaráætluninnar takist sem skyldi og gera breytingar ef þörf krefur eða veita markmiðaða ráðgjöf. Verkfræðingar á sviði endurnýjanlegrar orku undan ströndum sjá um prófun búnaðar, svo sem blaða á vindhverflum og rafala fyrir sjávarfallastrauma og öldur. Þeir þróa leiðir til skilvirkari orkuframleiðslu og umhverfislegrar sjálfbærni.

verkfræðingur á sviði óhefðbundins eldsneytis

ISCO 2149

Verkfræðingar á sviði óhefðbundins eldsneytis hanna og þróa kerfi, íhluta, hreyfla og búnað sem nýta endurnýjanlega orku og óhefðbundið eldsneyti, í stað notkunar á hefðbundnu jarðefnaeldsneyti sem aðal orkugjafa til knúnings og orkuframleiðslu. Þeir leitast við að hámarka orkuframleiðslu úr endurnýjanlegum orkugjöfum og draga úr framleiðslukostnaði og álagi á umhverfið. Óhefðbundið eldsneyti sem notað er í þessu sambandi er einkum fljótandi jarðgas (LNG), fljótandi jarðolíugas (LPG), lífdísilolía, lífalkóhól og rafmagn (þ.e. rafhlöður og efnarafalar), vetni og eldsneyti úr lífmassa.

verkfræðingur í flugvallarkerfum

ISCO 2149

Verkfræðingar í flugvallarkerfum hafa umsjón með því að viðhalda búnaði flugvallarins, t.d. sjónrænum leiðsögutækjum, rafkerfum flugvalla, farangurskerfum, öryggiskerfum, gangstéttum, frárennsli, viðhaldi á svæðum sem ekki eru lögð slitlagi og búnaði og ökutækjum.

vindverkfræðingur á landi

ISCO 2149

Verkfræðingar á sviði vindorkuvinnslu á landi sjá um hönnun, uppsetningu og viðhald á vindorkubúum og -búnaði. Þeir rannsaka og prófa staðsetningar til að finna þá sem gefur mest afköst, prófa búnað og einingar, svo sem vindhverflablöð, og þróa áætlanir sem miða að skilvirkari orkuframleiðslu og umhverfislegri sjálfbærni.

viðartækniverkfræðingur

ISCO 2149

Viðartækniverkfræðingar þróa efni og íhluti úr viði, smíða framleiðslustöðvar og stjórna og hafa eftirlit með framleiðslunni. Þeir rannsaka einnig vörur og efni og veita viðskiptavinum ráðgjöf.

vélahlutatæknifræðingur

ISCO 2149

Vélahlutatæknifræðingar hanna og sjá fyrir sér verkfræðiþróun ólíkra smárra hluta sem mynda stærra verk, vél eða ferli. Þeir tryggja að hlutar séu ekki ósamrýmanlegir frá verkfræðisjónarhorni.

vélmennaverkfræðingur

ISCO 2149

Vélmennaverkfræðingar hanna og þróa þjarkabúnað og forrit í samstarfi við meginreglur í vélaverkfræði. Þeir nota fyrirframákveðna hönnun og núverandi þróun til umbóta eða uppfinningar á kerfum, vélum og búnaði. Þeir sameina ýmis þekkingarsvið svo sem forritun, verkfræðistarfsemi og rafeindatækni í þróun nýs tæknihugbúnaðar.

vörustjórnunarverkfræðingur

ISCO 2149

Vörustjórnunarverkfræðingar hanna og innleiða kerfi sem miða að því að ná sem mestu út úr þeim tíma og fyrirhöfn sem notuð eru í flutningsstarfsemi. Þeir tryggja að kerfin stuðli að því að hægt sé að fylgjast með og samskipti gangi vel í gegnum allar flutningsaðferðir og stig flutninga.

úttektarverkfræðingur

ISCO 2149

Úttektarverkfræðingar hafa umsjón með lokaáföngum verkefnis þegar kerfi eru sett upp og prófuð. Þeir hafa eftirlit með því að búnaður, aðstaða og stöðvar starfi rétt og tryggja að kröfur og forskriftir séu uppfylltar. Þeir framkvæma nauðsynlegar sannprófanir og veita samþykki til að ljúka verkefninu.

Hæfni

ESCO flokkar hæfni sem dæmigerða eða viðbótar fyrir starfsheiti. Einstakir starfsmenn hafa yfirleitt hluta af listanum — sniðinn að sérhæfingu og vinnuveitanda.

Dæmigerð (200)

CAD-hugbúnaðurCAM-hugbúnaðurLagaleg hugtökUST-uppbyggingarrammiV2X-bílasamskiptatækniaflar upplýsinga um vindhverflaaflfræðiaflrafeindatækniaflverkfræðialgrímslausnarverkefniannast fjárhagsáætlanirathugar endingu efnaathugar styrkleika efnaathugar stöðugleika efnaauðlindanýtin tækniaðfangastjórnunaðferðafræði við gæðatrygginguaðferðafræði vísindalegra rannsóknaaðferðir við jarðvarmaorkuframleiðsluaðgerðir í jarðvarmaorkuveriaðgreinir aukahlutiaðgreinir vefnaðaðlagar orkudreifingaráætlunaðlagar vélahönnunbeinar skipulagsaðgerðirbeita sér fyrir nýsköpun í rekstribeita tölfræðilegum greiningaraðferðumbeitir flugvallarstöðlum og reglugerðumbeitir hollustu- og öryggisstöðlumbeitir tölulæsishæfnibeitir vísindalegum aðferðumber kennsl á byggingarefni út frá teikningumber kennsl á endurbætur ferlaber kennsl á markmið viðskiptavinarber saman færibreytur og viðmiðunargildibilanaleitarblendingsstjórnunarkerfibyggingaraðferðirbyggingariðnaðurbyggingarreglugerðirbyggingarverkfræðibyggingarvörurbyggir upp viðskiptatengslbúa til teikningar með tölvustuddri hönnun (CAD)býr til einkaleyfisdrögbýr til frumgerð af ljósfræðilegum kerfumbýr til frumgerð af skynjurumbýr til lausnir á vandamálumbýr til leiðbeiningar um framleiðsludregur úr umhverfisáhrifum skófatnaðarframleiðsluefnafræðiefnafræðilegar vörurefnarafalarefni í lækningatækiefnisfræði trjáaefniskraftfræðiefnisverkfræðieiga í faglegum samskiptum í rannsókna- og starfsumhverfieiginleikar sjónglerjaeiginleikar textílefnaeinkaleyfiekur frumgerðir bifvélaeldsneytisgaseldvarnarreglugerðireldvarnarverkfræðiendurframleiðsla kjarnorkuendurnýjanleg orkaer í samskiptum við byggingarflokkaerfðafræðieðlisfræðifargar hættulegum úrgangifellir nýjar vörur inn í framleiðslukerfifer eftir samningsákvæðumfer yfir byggingaráætlunfer yfir leyfi til byggingarframkvæmdafjarskiptaverkfræðifjármálagreiningframkvæma gerleikakönnun varðandi jarðvarmaframkvæma gerleikakönnun varðandi vetniframkvæma gerleikakönnun á hitun með sólarorkuframkvæma gerleikakönnun á kerfum sem nýta lífmassaframkvæma gerleikakönnun á lífgasiframkvæma gerleikakönnun á rafhitunframkvæma gerleikakönnun á samþættri varma- og raforkuframkvæma gerleikakönnun á varmadælumframkvæma hugbúnaðarprófanirframkvæma stærðfræðilega greiningarútreikningaframkvæmd verkefnisframkvæmdaferliframkvæmir athuganir á rannsóknarstofuframkvæmir efnatilraunirframkvæmir eftirlit sem krafist er af alþjóðlegum sáttmálumframkvæmir gagnagreininguframkvæmir gæðastjórnunargreiningarframkvæmir prufukeyrsluframkvæmir reikningshald vegna útgjaldaframkvæmir vöruáætlanagerðframkvæmir öryggisgagnagreininguframleiðir pantanir neytandaframleiðsluaðferðirframleiðsluferli ljósfræðilegra varaframleiðsluvörur sólarorkufræðir um öryggisráðstafanirfylgir heilsu- og öryggisferlum í byggingariðnaðifylgir öryggisvarúðarráðstöfunum kjarnorkuversfylgist með framleiðsluþróunfylgist með heilsu starfsmannsfylgist með kjarnorkuverakerfumfylgist með nýjungum á ýmsum viðskiptasviðumfylgist með stefnum og straumum í tækninýjungumfylgist með þróun textílframleiðslugagnavistungefur upplýsingar um ríkisstyrkigeislamengungeislavarnirgera sér grein fyrir kröfum viðskiptavinagera vísindalega rannsókngerir hagkvæmnisathugungerir hljóðathuganirgerir rafmagnsútreikningagerir rannsóknir á staðsetningum fyrir vindorkubúgerir áhættugreiningugervitauganetgreina tæknilýsingar hugbúnaðargreina tækniþarfirgreinir fjármálaáhættugreinir framleiðsluferli til þróunargreinir gæði viðargreinir hugsanlega markaði fyrir fyrirtækigreinir orkunotkungreinir orkuþarfirgreinir prófunargögngreinir tilraunagögn rannsóknarstofugreinir vísindaleg gögngreinir þarfir viðskiptavinargrundvallaratriði hönnunargrundvallaratriði verkefnastjórnunargrundvallaratriði verkfræðinnargæðastaðlarhaffræðihaftæknihalda utan um persónulega faglega þróunhanna jarðvarmaorkukerfihanna kælikerfi byggt á nýtingu sólarvarmahanna orkukerfi á sjóhanna rafhitunarkerfihanna varmadælukerfihannar hitakerfi byggt á sólarorkuhannar ljósfræðileg kerfihannar ljósfræðilegar frumgerðirhannar rafmagnskerfihannar raforkukerfihannar samrásirhannar sjálfvirknishlutahannar skynjarahannar stefnumörkun vegna kjarnorkuneyðartilvikahannar sólarorkukerfihannar tæknilega hjóðkerfihannar varmabúnaðhannar vindhverflahannar vélarhlutahefur eftirlit með mannvirkjum á hafi útihefur samskipti við hagsmunaaðila flugvallarhefur umsjón með birgðastjórnunhefur umsjón með gasdreifingaraðgerðumhefur umsjón með tímasetningu verkefnahefur umsjón með vöruprófunhefur yfirumsjón með viðhaldsstarfsemi á flugvöllumheilmyndunheldur skrá yfir framvindu verkshitunarkerfi fyrir iðnaðhljómburðarverkfræðihljóðfræðihljóðtæknihringrásarhagkerfihugbúnaðarfrávikhugbúnaðarskipulaghugsa óhlutbundiðhugverkarétturháþróar efniháþróuð efniháþróuð hjálparkerfi fyrir ökumennhönnunarlíffræðihönnunarteikningarinnleiðir nýjungar í upplýsingatækniinnrauðir nemariðnaðarhönnuniðnaðarrannsóknir og þróuniðnaðarverkfræðiiðnframleiðsluferlijarðfræðijarðgasjarðhitaorkajarðvarmaorkukerfikanna mögulegar staðsetningar orkubúa undan ströndumkannar byggingarkerfikannar vörugæðikemur á orkustjórnun á afmörkuðum svæðumkemur í veg fyrir sjávarmengunkemur í veg fyrir vandamál varðandi heilbrigði og öryggi

Aðgangur um API

GET /api/v1/occupations/2149