Freinet-kennari
ISCO 2342
Freinetkennarar mennta nemendur með nálgunum sem endurspegla heimspeki og meginreglur Freinet. Þeir leggja áherslu á spurnar-, lýðræðiseflandi- og samvinnunámsaðferðir. Þeir fylgja sérstakri námskrá sem felur í sér þessar námsaðferðir þar sem nemendur nota leitaraðferðir til að þróa áhuga sinn á lýðræðislegu og sjálfstjórnunarsamhengi. Freinetkennarar hvetja einnig nemendur til að búa til vörur og veita þjónustu utan kennslustunda, vanalega handverk eða með persónulegu frumkvæði, og framkvæma þannig "kennslufræði vinnu" kenningu. Þeir stjórna og meta alla nemendur á einstaklingsgrunni í samræmi við heimspeki Freinetskólans.
Montessori-kennari
ISCO 2342
Montessorikennarar mennta nemendur með nálgunum sem endurspegla heimspeki og meginreglur Montessori. Þeir leggja áherslu á hugrænt nám og uppgötvunarnám þar sem þeir hvetja nemendur til að læra með eigin reynslu frekar en í gegnum beinar leiðbeiningar og veita nemendum með því tiltölulega mikið frelsi. Þeir fylgja sérstakri námsskrá sem virðir náttúrulega, efnislega, félagslega og sálfræðilega þróun námsmanna. Montessorikennarar kenna einnig bekkjum þar sem aldursmunur nemenda er allt að þrjú ár í frekar stórum hópum. Þeir stjórna og meta nemendur á einstaklingsgrunni samkvæmt heimspeki Montessoriskólanna.
leikskólakennari
ISCO 2342
Kennarar á fyrstu stigum leiðbeina nemendum, einkum ungum börnum í grunnfögum og skapandi leik með það að markmiði að þróa félags- og vitsmunafærni þeirra á óformlegan hátt og til undirbúnings fyrir frekara formlegt nám. Þau búa til kennsluáætlanir, mögulega í samræmi við fasta námskrá fyrir heilan bekk eða smærri hópa og prófa nemendur um innihald þeirra. Þessar kennsluáætlanir, sem byggðar eru á grunngreinum, geta falið í sér kennslu með tölur, bókstafi og litaþekkingu, vikudaga, flokkun á dýrum og samgöngutækjum o.s.frv. Leikskólakennarar leiðbeina einnig nemendum utan kennslurýmis á skólalóðinni og framfylgja einnig hegðunarreglum þar.