farandkennari fyrir börn með sérþarfir
ISCO 2352
Farandkennarar fyrir börn með sérþarfir leiðbeina fötluðum eða veikum börnum á heimilum þeirra. Þeir eru sérhæfðir kennarar sem starfa fyrir (opinbera) skólar við að kenna þeim sem geta ekki mætt í skóla, en einnig til að aðstoða nemandann, foreldra og skóla í samskiptum þeirra. Þeir gegna einnig hlutverki félagsráðgjafa skólans með því að hjálpa nemendum og foreldrum með möguleg hegðunarvandamál og stuðla að framfylgni mætingareglna ef þurfa þykir. Ef um er að ræða að fá (aftur) aðgang að skóla eiga farandkennarar að ráðleggja skólanum varðandi hentugar áætlanir fyrir kennslustundir og kennsluaðferðir til að styðja við nemandann og gera aðlögun að skóla eins þægilega og völ er á.
kennari bráðgerra nemenda
ISCO 2352
Kennarar hæfileikamikilla og bráðgerra nemenda kenna nemendum sem hafa mikla hæfileika á einu eða fleiri sviðum. Þeir fylgjast með framförum nemenda sinna, koma með tillögur að viðbótarverkefnum til að auka og örva hæfileika þeirra, kynna þá fyrir nýju námsefni og -greinum, úthluta þeim heimaverkefni og gefa einkunnir fyrir ritgerðir og próf og að endingu veita þeir andlegan stuðning þegar þess er þörf. Kennarar hæfileikamikilla og bráðgerra nemenda vita hvernig þeir geta virkjað áhuga þeirra og látið þeim líða vel með greind sína.
kennari fyrir nemendur með sérþarfir
ISCO 2352
Sérkennarar starfa með og kenna börnum, unglingum og fullorðnum með vitsmunalega eða líkamlega fötlun. Þeir nota ýmis sérhæfð hugtök, áætlanir og tæki til að hámarka samskipti, hreyfanleika, sjálfræði og félagslega aðlögun nemandans. Þeir velja kennsluaðferðir og stuðningsúrræði til að gera einstökum námsmönnum kleift að nýta sér mögulega sjálfstæða búsetu.
kennari í lestri og skrift fullorðinna
ISCO 2352
Kennarar í lestri og skrift fullorðinna leiðbeina fullorðnum nemendum, þar á meðal nýjum innflytjendum og þeim sem hætta skólagöngu snemma, um grunn lestrar og skrifhæfni, yfirleitt á grunnskólastigi. Kennarar í lestri og skrift fullorðinna fá nemendur sína til að taka þátt í og framkvæma lestraræfingum og meta þá á einstaklingsgrundvelli í með verkefnum og prófum.
sérkennari
ISCO 2352
Kennarar í námsaðstoð hjálpa nemendum sem eru með almenna námserfiðleika. Kennarar í námsaðstoð einblína á grunnfærni á borð við tölur og lestur og kenna þar af leiðandi grunnfög á borð við lestur, skrift, stærðfræði og tungumál og þeir starfa á menntastofnunum á borð við grunn- og framhaldsskóla. Þeir styðja nemendur í skólastarfi, skipuleggja námsaðferðir, bera kennsl á námsþarfir og framfarir og starfa samkvæmt því. Þeir geta starfað í ýmiss konar menntastofnunum og styðja við aðra kennara eða stjórna sínum eigin kennslustundum.
sérkennari á framhaldsskólastígi
ISCO 2352
Sérkennslukennarar í framhaldsskóla fyrir nemendur með sérþarfir veita nemendum með ýmsar fatlanir sérhannaðar leiðbeiningar á framhaldsskólastigi og tryggja að þeir nái hámarks námsárangri. Sumir sérkennarar í framhaldsskólum starfa með börnum sem hafa vægar eða meðalvægar fatlanir og innleiða aðlagaða námskrá til að þær passi fyrir sérþarfir hvers nemanda. Aðrir sérkennarar í framhaldsskólum aðstoða og leiðbeina nemendum með vitsmunalegar fatlanir og einhverfu. Þeir einbeita sér að því að kenna þeim grunn- og þróaðar aðferðir í lestri, lífsleikni og félagsfærni. Allir kennarar meta framfarir námsmanna með hliðsjón af styrkleikum þeirra og veikleikum og eiga samskipti um niðurstöður við foreldra, ráðgjafa, starfsfólks í stjórnsýslu og aðra sem hlut eiga að máli.
sérkennari á grunnskólastígi
ISCO 2352
Grunnskólakennarar fyrir börn með sérþarfir veita nemendum á leikskólastigi, með ýmsa fötlun, sérhannaðar leiðbeiningar og tryggja að þeir hámarki námsárangur sinn. Sumir grunnskólakennarar fyrir börn með sérþarfir starfa með börnum sem eru með væga eða millivæga fötlun og innleiða aðlagaða námskrá til að hún passi sérþörfum hvers nemanda fyrir sig. Aðrir sérkennarar í grunnskólum aðstoða og leiðbeina nemendum með vitsmunalega fötlun og einhverfu. Þeir einbeita sér að því að kenna þeim grunn- og þróaðar aðferðir í lestri, lífsleikni og félagsfærni. Allir kennarar meta framfarir námsmanna með hliðsjón af styrkleikum þeirra og veikleikum og eiga samskipti um niðurstöður við foreldra, ráðgjafa, starfsfólks í stjórnsýslu og aðra sem hlut eiga að máli.
sérkennari á leikskólastigi
ISCO 2352
Leikskólakennarar fyrir börn með sérþarfir veita nemendum á leikskólastigi, með ýmsa fötlun, sérhannaðar leiðbeiningar og tryggja að þeir hámarki námsárangur sinn. Sumir leikskólakennarar fyrir börn með sérþarfir starfa með börnum sem eru með væga eða millivæga fötlun og innleiða aðlagaða námskrá til að hún passi sérþörfum hvers nemanda fyrir sig. Aðrir sérkennarar í leikskólum aðstoða og leiðbeina nemendum með vitsmunalega fötlun og einhverfu. Þeir einbeita sér að því að kenna þeim grunnaðferðir í lestri, lífsleikni. Allir kennarar meta framfarir námsmanna með hliðsjón af styrkleikum þeirra og veikleikum og eiga samskipti um niðurstöður við foreldra, ráðgjafa, starfsfólks í stjórnsýslu og aðra sem hlut eiga að máli.