fjárfestingasérfræðingur
ISCO 2413
Fjárfestingasérfræðingar taka að sér að gera rannsóknir til að geta lagt fram upplýstar tillögur til sjóðsstjóra. Þeir rannsaka alþjóðlegar fjárfestingar en það fer eftir eðli og sviði vinnuveitanda hvaða sviði þeir sérhæfa sig í, s.s. smásölu, innviðum, orku og banka- og fjármálaþjónustu. Þeir leggja áherslu á fjárhagslegar og efnahagslegar upplýsingar, svo sem þróanir á sviði stjórnmála og efnahagsmála sem geta haft áhrif á fjármálamarkaði, rekstrarárangur fyrirtækisins sem um ræðir, og nýta túlkun gagna frá mismunandi heimildum til að skilja hvernig þau hafa áhrif á ákvarðanatöku fjárfestingar.
fjármálasérfræðingur
ISCO 2413
Fjármálasérfræðingar stjórna efnahagslegum rannsóknum og ná fram verðmætum greiningum á fjárhagslegum málum á borð við arðsemi, lausafjárstöðu, gjaldfærni og eignastýringu. Þeir leggja fram tilmæli fyrir ákvarðanatökuferli er varða fjárhagsleg mál. Fjármálasérfræðingar vinna bæði í opinbera geiranum og einkageiranum.
sérfræðingur á skrifstofu á miðstigi
ISCO 2413
Sérfræðingar á skrifstofu á miðstigi starfa í fjármáladeild fjármálafyrirtækis, tryggja að farið sé eftir stefnu fyrirtækisins og löggjöf, sýna fram á rannsóknir og greiningu á sviði fjármála og meta áhættu og styðja aðgerðir fremstu skrifstofu.
sérfræðingur í fjármálagreiningu
ISCO 2413
Sérfræðingar í fjármálagreiningu annast rannsóknir til að safna og greina fjárhags-, laga- og efnahagslegar upplýsingar. Þeir túlka gögn um verð, stöðugleika og framtíðarfjárfestingar á tilteknu efnahagssvæði og gera tillögur og spár fyrir viðskiptavini.
sérfræðingur í samruna og yfirtöku fyrirtækja
ISCO 2413
Sérfræðingar í samruna og yfirtöku fyrirtækja annast framkvæmd viðskipta við kaup, sölu, samruna eða yfirtöku félaga. Þeir semja og ljúka við viðskipti fyrir hönd viðskiptavinar með því að vinna náið með lögmönnum og löggiltum endurskoðendum. Sérfræðingar vegna samruna og yfirtöku stjórna rekstrar- og lagalegu áhættumati félags, meta sambærileg fyrirtæki á markaðinum og hjálpa við sameiningu eftir samruna.
tryggingagreinandi
ISCO 2413
Tryggingasérfræðingar greina upplýsingar sem tengjast tryggingamörkuðum og lánshæfismati þeirra, útbúa matsgögn og reikninga, taka saman reikningsskil, reikninga og fjárhagsupplýsingar og leggja fram og útskýra matsálit til hagsmunaaðila, viðskiptavina og utanaðkomandi aðila. Þeir vinna fyrir vátryggingafélög og reikna út iðgjöld og taxta tryggingarfyrirtækja fyrir viðskiptavini með því að nota bæði handvirkar og sjálfvirkar aðferðir.