ferlastjóri
ISCO 2421
Verkferlafulltrúar bera kennsl á, skjalfesta og viðhalda þeim ferlum sem nauðsynleg eru fyrir starfsemi. Þau endurskoða núverandi ferli, meta úrbætur í samvinnu við hagsmunaaðila, gera drög að innri skjölum og styðja við rekstur starfseminnar til að uppfylla helstu meginframmistöðuvísa.
matsmaður framleiðslukostnaðar
ISCO 2421
Matsmenn framleiðslukostnaðar safna saman gögnum og greina þau til þess að meta það fjármagn, efni, vinnuafl og tíma sem krafist er í framleiðsluferlum. Þeir stjórna greiningum til að auðkenna (aðrar) hagkvæmar aðferðir til skilvirkrar tæknilegar hönnunar og framleiðsluferlanna. Þeir þróa og nota aðferðir og tæki við kostnaðaráætlanagerð, stjórnun og greiningu. Þeir framkvæma einnig megindlega og eigindlega áhættugreiningu og gefa skýrslu um kostnaðarþróun.
ráðgjafi um upplýsingalíkan mannvirkja
ISCO 2421
Ráðgjafi í líkanagerð byggingaupplýsinga veitir ráðgjöf, leiðbeinir og sinnir matsvinnu fyrir viðskiptavini í viðskiptaferlum með líkanagerð byggingaupplýsinga (BIM), auk þess að veita byggingarverkafólki ráðgjöf í framkvæmd BIM tækni. Þau sjá um samskipti við starfsfólk og viðskiptavini, innleiða aðferðir og BIM lausnir til að ljúka verki fyrir afhendingu og undirbúa drög að skjölum, t.d. flæðirit, dagskrá og leiðbeiningum um bestu starfsvenjur.
sérfræðingur í viðskiptagreiningu (BI)
ISCO 2421
Forstöðumenn viðskiptagreindar afla sér þekkingar á iðnaðinum, kynna sér nýsköpunarferla og bera saman við aðgerðir félagsins, í því skyni að bæta þær. Þeir leggja áherslu á greiningar á ferlum aðfangakeðjunnar, vörugeymslum, geymslu, og sölu til að auðvelda samskipti og bæta tekjur.
sérfræðingur í vörustjórnun
ISCO 2421
Vörustjórnunarsérfræðingar einfalda vöruframleiðslu, flutning, geymslu og dreifingu. Þeir meta vanda í tengslum við framleiðslu og aðfangakeðju til að ákvarða efnahagslega skilvirkar lausnir. Þeir aðstoða stjórnendur fyrirtækisins í ákvarðanatökuferlinu og stjórna áætlunum sem ætlað er að veita undirverktökum, stjórnendum og viðskiptavinum vörustjórnunartækni.
viðskiptaráðgjafi
ISCO 2421
Viðskiptaráðgjafar greina staðsetningu, skipulag og ferli fyrirtækja og félaga og bjóða þjónustu eða ráðgjöf til umbóta. Þeir rannsaka og greina viðskiptaferla, s.s. fjárhagslega óskilvirkni eða starfsmannastjórnun og koma með hugmyndir að áætlunum sem vinna bug á þessum erfiðleikum. Þeir vinna hjá utanaðkomandi ráðgjafafyrirtækjum þar sem þeir bjóða upp á hlutlægt sjónarmið á skipulagi fyrirtækis eða félags og aðferðafræðilegum ferlum.
viðskiptasérfræðingur
ISCO 2421
Viðskiptasérfræðingar rannsaka og skilja skipulega stöðu fyrirtækja og félaga í tengslum við markaði þeirra og hagsmunaaðila. Þeir greina og leggja fram álit sitt á því hvernig fyrirtækið, frá mörgum sjónarhornum, getur bætt skipulega stöðu sína og innra skipulag fyrirtækisins. Þeir meta þarfir fyrir breytingu, samskiptaaðferðir, tækni, upplýsingatæknibúnað, nýja staðla og vottanir.
yfirmaður straumlínustjórnunar
ISCO 2421
Yfirmenn straumlínustjórnunar skipuleggja og stjórna umbótaáætlunum í hinum ýmsu rekstrardeildum fyrirtækis. Þeir keyra og samræma verkefni á sviði stöðugra umbóta sem miða að því að ná skilvirkni í framleiðslu, besta framleiðni starfsmanna, vera hvati á nýsköpun í fyrirtækinu og koma á umbreytingum sem hafa áhrif á starfsemi og verkferli, og þeir skila stjórn fyrirtækisins skýrslum um árangur og framfarir. Þeir stuðla að því að innan fyrirtækisins festist í sessi kúltúr varðandi stöðugar umbætur og sjá um að koma upp og þjálfa teymi sérfræðinga í straumlínustjórnun.