auglýsingasérfræðingur
ISCO 2431
Auglýsingasérfræðingar veita ráðleggingar til fyrirtækja og stofnana varðandi þróun á auglýsingaáætlunum og á málefnum tengdum auglýsingum sem ná yfir almenna stefnumótun. Þeir sameina þekkingu á markaðssetningu, fjárhagsáætlunum og sálfræði með sköpun til að þróa auglýsingaherferðir. Þeir veita tillögur til viðskiptavina til miða að því að efla stofnanirnar, vörurnar eða verkefnin.
aðstoðarmaður markaðsmála
ISCO 2431
Aðstoðarmenn markaðsmála styðja við öll verkefni og allar aðgerðir markaðsstjóra og markaðsfulltrúa. Þeir undirbúa skýrslur í tengslum við þær markaðsaðgerðir sem aðrar deildir þurfa á að halda, og þá sérstaklega bókhalds- og fjármáladeildir. Þeir tryggja að þær auðlindir, sem stjórnendur þurfa á að halda til að framkvæma störf sín, séu til staðar.
birtingastjóri
ISCO 2431
Skipuleggjendur auglýsingamiðla ráðleggja hvaða vettvangur auglýsingatengsla hentar best til þess að miðla hugmyndum. Þeir greina auglýsingaáætlanir til þess að leggja mat á markmið og tilgang markaðsáætlunarinnar. Þeir meta þá möguleika og það svarhlutfall sem mismunandi samskiptaleiðir geta haft við miðlun skilaboða sem tengjast vöru, fyrirtæki, eða vörumerki.
höfundur auglýsingatexta
ISCO 2431
Auglýsingatextagerðarmenn bera ábyrgð á skriflegri og munnlegri hönnun auglýsinga. Þeir semja slagorð, kjörorð og annað slíkt og vinna náið með auglýsingalistamönnum.
innkaupastjóri auglýsingamiðla
ISCO 2431
Innkaupastjórar auglýsingamiðla kaupa, fyrir hönd viðskiptavina sinna, auglýsingarými í prent-, útvarps- og netmiðlum. Þeir greina virkni hinna ýmsu leiða og hversu viðeigandi þær eru, og fer það eftir þeirri vöru og þjónustu sem er ráðgefandi við ákvarðanatöku. Þeir reyna að semja um besta verðið án þess að hafa áhrif á gæði auglýsingarinnar. Þeir styðja við þróun og framkvæmd markaðssetningar- og auglýsingaáætlana er varðar samskipti, í gegnum þær leiðir er henta best.
kynningarfulltrúi
ISCO 2431
Aðstoðarmenn kynningarstarfs veita stuðning við að hrinda í framkvæmd verkefnum og kynningarátökum á sviði sölu. Þeir rannsaka og hafa umsjón með öllum þeim upplýsingum sem krafist er af stjórnendum til þess að ákveða hvort þörf er á kynningarverkefnum. Ef svo er, þá veita þeir aðstoð við að afla efnis og auðlinda fyrir kynningaraðgerðina.
markaðsráðgjafi
ISCO 2431
Markaðsráðgjafar veita fyrirtækjum ráðgjöf við að þróa markaðssetningu í ákveðnum tilgangi. Þeir geta gefið ráðleggingar og mótað áætlanir fyrir fyrstu kynningu vörumerkis á markaði, nýja markaðsherferð fyrir vöru, markaðssetningu á nýrri vöru eða staðsetningu markaðsímyndar. Þeir gera undanfarandi rannsóknir á stöðu fyrirtækisins og skynjun viðskiptavina í því skyni að ákvarða aðferðir við markaðssetninguna.
netmarkaðsmaður
ISCO 2431
Netmarkaðsmenn beita ýmsum markaðsáætlunum, þar með talið markaðsaðferðum á netinu til að selja vörur og sannfæra nýtt fólk um að taka þátt og byrja að selja þessar vörur. Þeir nota persónuleg tengsl til að laða að viðskiptavini og selja mismunandi tegundir af vörum.
sköpunarleiðtogi
ISCO 2431
Sköpunarleiðtogar annast umsjón þess teymis sem ber ábyrgð á hönnun auglýsinga. Þeir hafa umsjón með öllu hönnunarferlinu. Sköpunarleiðtogar kynna hannanir teymisins fyrir viðskiptavininum.
stjórnandi tekna af ferðaþjónustu
ISCO 2431
Stjórnendur tekna af ferðaþjónustu skulu hámarka tekjur af aðstöðu á borð við hótel, orlofsdvalarstaði og tjaldsvæði með því að greina þróun og samkeppni. Þeir aðstoða stjórnendur stofnana við að taka stefnumótandi ákvarðanir. Stjórnendur tekna af ferðaþjónustu greina og hámarka fjárhagslega möguleika staðarins og stjórna viðkomandi starfsfólki.
stjórnandi á sviði rafrænnar verslunar
ISCO 2431
Netviðskiptastjórar búa til og framkvæma rafræna áætlun fyrirtækis er varðar sölu á vörum og þjónustu á netinu. Þeir bæta einnig heilleika gagna, staðsetningu netverkfæra og sýnileika vörumerkis, og hafa eftirlit með sölu fyrir fyrirtæki sem markaðssetur vörur til viðskiptavina í gegnum netið. Þeir eru í samstarfi við markaðs- og söluteymið og nota til þess tól upplýsinga- og fjarskiptatækni til þess að ná sölumarkmiðum og veita samstarfsaðilum nákvæmar upplýsingar og framlög.
stjórnandi ímyndarþróunar starfsmanna
ISCO 2431
Stjórnendur ímyndarþróunar starfsamanna kynna í samstarfi við markaðssérfræðinga ímynd vinnuveitanda í gegnum samskiptaform eins og prentmiðla og samfélagsmiðla. Leggja fram áætlun fyrir og stjórna markaðssetningu á netinu til að kynna atvinnutækifæri og starfsframatækifæri hjá fyrirtækinu.
sérfræðingur í markaðsrannsóknum
ISCO 2431
Sérfræðingar í markaðsrannsóknum safna upplýsingum sem fást við markaðsrannsóknir og vinna úr þeim til að komast að niðurstöðum. Þeir skilgreina hugsanlega viðskiptavini vöru, markhópinn og hvernig hægt er að ná til hans. Sérfræðingar í markaðsrannsóknum greina staðsetningu vara innan markaðarins frá mismunandi sjónarhornum eins og t.d. einkennum, verði og samkeppnisaðilum. Þeir greina fylgisölu og víxltengsl milli mismunandi vara og staðsetningu þeirra. Sérfræðingar í markaðsrannsóknum undirbúa gagnlegar upplýsingar fyrir þróun markaðsáætlana.
vefmarkaðsmaður
ISCO 2431
Vefmarkaðsmenn nota tölvupóst, netið og samfélagsmiðla til þess að markaðssetja vörur og vörumerki.
verkefnastjóri í félagaöflun
ISCO 2431
Stjórnendur félagsaðildar hafa umsjón með og stjórna félagsaðildaráætluninni, styðja við núverandi félagsmenn og eiga samskipti við hugsanlega nýja félagsmenn. Þeir greina skýrslur markaðsþróunar og þróa markaðsáætlanir í samræmi við þær. Stjórnendur félagsaðildar hafa eftirlit með og tryggja skilvirkni ferla, kerfa og stefna.
verðlagssérfræðingur
ISCO 2431
Sérfræðingar verðlagningar greina vöruverð, markaðsstefnur og samkeppnisaðila í því skyni að ákvarða rétt verð, með tilliti til vörumerkis og markaðssetningar.
viðburðastjóri viðskiptavina
ISCO 2431
Viðburðarstjórar viðskiptavina hafa eftirlit með upplifunum viðskiptavina með því að hanna, meta og bæta samtök viðskiptavina í þjónustu og afþreyingar- eða skemmtanaiðnaði. Þeir þróa aðgerðaráætlanir til að hámarka alla þætti upplifunar viðskiptavinarins. Viðburðarstjórar viðskiptavina leggja sig fram við að tryggja ánægju viðskiptavina og auka hagnað fyrirtækja.
viðskiptatengill
ISCO 2431
Tengslastjórar viðskiptavina starfa sem milliliðir á milli fyrirtækis og viðskiptavina þess. Þeir tryggja ánægju viðskiptavina með því að veita þeim aðstoð og útskýringar varðandi reikninga þeirra og þjónustu sem þeir fá frá fyrirtækinu. Þeir hafa einnig möguleika á öðrum verkefnum eins og t.d. að þróa áætlanir eða kynna tillögur.
viðskiptaþróunarstjóri
ISCO 2431
Viðskiptaþróunarstjórar sækjast eftir að bæta markaðshlutdeild fyrirtækja á markaðinum. Þeir framkvæma stefnumiðandi greiningu á þeim grundvallarávinningi sem vörur eða þjónusta fyrirtækis hefur upp á að bjóða, þeir vinna saman að þróun markaðsherferða fyrir aðalframleiðslu og styðja við sölutilraunir.
vöru- og þjónustustjóri
ISCO 2431
Vöru- og þjónustustjórar bera ábyrgð á að skilgreina innihald og skipulag vöruskrár eða eignasafns innan fyrirtækis.
vörumerkjastjóri
ISCO 2431
Vörumerkjastjórar greina og skipuleggja leiðir til staðsetningar vörumerkis á markaðinum.