dánardómstjóri
ISCO 2619
Dánardómsstjórar hafa umsjón með skoðunum á látnum einstaklingum í því skyni að ákvarða dánarorsök við óhefðbundnar aðstæður. Þeir tryggja að haldnar séu skrár um dauðsföll innan lögsögu þeirra, og greiða fyrir samskiptum við aðra embættismenn til að tryggja að rannsóknin sé fullnægjandi.
endurritari lagalegra texta
ISCO 2619
Endurritarar lagalegra texta rannsaka hluta löggjafar og endurrita þá til þess að gera þá sterkari og skýrari. Þeir bæta, þó sjaldan sé, nýjum hugmyndum við sem hafa aldrei áður verið felldar inn í lög eða frumvarp.
kosningaeftirlitsmaður
ISCO 2619
Kosningareftirlitsmenn eru hæfir og þjálfaðir áhorfendur kosninganna í starfandi lýðræði í því skyni að auka gegnsæi og trúverðugleika kosninganna.
lagalegur ráðgjafi
ISCO 2619
Lagalegir ráðgjafar ráðleggja margvíslegum hópi viðskiptavina, allt frá fyrirtækjum, einstaklingum og til lögfræðistofu. Þeir veita lögfræðiráðgjöf utan dómstóla í tengslum við lagaleg málefni sem fara eftir eðli viðskiptavinarins. Þeir veita ráðgjöf í málum eins og fjölþjóðlegrar sameiningar, fasteignakaupa, breytingum á samningum og ályktunum þeirra. Þeir hjálpa viðskiptavinum almennt við að fara eftir reglugerðum og komast hjá því að fremja ólögleg athæfi.
lögbókandi
ISCO 2619
Lögbókendur sjá til þess að opinber skjöl séu ósvikin og lögmæt, s.s. yfirlýsingar, vottorð, samningar, afsöl og kaupsamningar. Þeir rannsaka skjölin, votta undirskriftir og auðkenna þær. Þeir hafa umsjón með eiðsvörðum yfirlýsingum og framkvæma aðrar aðgerðir lögbókunar.
mannréttindafulltrúi
ISCO 2619
Mannréttindafulltrúar rannsaka og meðhöndla mannréttindabrot, ásamt því að þróa áætlanir til að draga úr brotum og til að tryggja að farið sé að lögum um mannréttindi. Þeir rannsaka kærur með því að skoða upplýsingar og taka viðtöl við fórnarlömb og gerendur, og eiga í samskiptum við stofnanir sem eru viðriðin starfsemi er varðar mannréttindi.
persónuverndarfulltrúi
ISCO 2619
Persónuverndarfulltrúar sjá til þess að vinnsla persónuupplýsinga í tiltekinni stofnun sé í samræmi við persónuverndarstaðla og þær skuldbindingar sem kveðið er á um í viðeigandi löggjöf, svo sem persónuverndarreglugerð ESB. Þeir móta og innleiða stefnu stofnunarinnar varðandi gagnavernd, sjá um að meta áhrif gagnaverndar og meðhöndla kvartanir og beiðnir frá þriðju aðilum og eftirlitsstofnunum. Persónuverndarfulltrúar stjórna rannsóknum á hugsanlegum öryggisbrotum við meðferð persónuupplýsinga, sinna úttektum innan stofnunarinnar og gegna hlutverki tengiliðs innan stofnunarinnar varðandi hvers konar mál sem tengjast vinnslu persónuupplýsinga. Persónuverndarfulltrúar geta sett á laggirnar fræðslunámskeið og veitt öðru starfsfólki þjálfun og fræðslu varðandi verklag við gagnavernd.
samningsstjóri
ISCO 2619
Samningsumsjónarmenn hafa eftirlit með að gerðir samningar séu virtir til að tryggja að þjónusta sé veitt eins og gert var ráð fyrir og að hvert skref til efnda sé skjalfært með viðeigandi hætti. Þeir gegna hlutverki aðaltengiliðs fyrir birgja að því er varðar samningstengd atriði og skýra yfirboðurum sínum frá gangi mála. Þeir koma fjármála- og rekstrareftirliti í framkvæmd og sjá um að allar kröfur um skýrslugerð séu uppfylltar.
samræmingarmaður kviðdóms
ISCO 2619
Samræmingarmenn kviðdóms aðstoða lögfræðinga við undirbúning málaferlisins með því að rannsaka meðlimi kviðdóms. Þeir aðstoða við stefnuþróun málaferlis, greina hegðun kviðdóms á meðan á málaferlum stendur, og ráðleggja lögfræðingum um málsmeðferð. Þeir aðstoða einnig við undirbúning vitna og byggingu rökstuðnings.
stjórnandi reglugerðarmála
ISCO 2619
Stjórnendur reglugerðarmála hafa umsjón með reglugerðar- og lagamálefnum innan mismunandi geira s.s. heilbrigðisþjónustu, orku og bankageiranum. Þeir hafa umsjón með þróun á vöru og þjónustu frá upphafi og þar til vara er birt á markaði, með því að ganga úr skugga um að allt sé í samræmi við svæðisbundna löggjöf og uppfylli lagalegar kröfur. Þeir búa yfir reynslu á mismunandi stigum stjórnsýsluferla og koma fram sem tengiliður á milli fyrirtækis og stjórnvaldslöggjafar eða reglugerðarnefndar.
sáttasemjari
ISCO 2619
Sáttasemjarar leysa úr deilum milli tveggja málsaðila með því að rannsaka málið, taka viðtöl við báða aðila, og veita ráðgjöf varðandi úrlausn til hagsbóta fyrir báða aðila. Þeir hlusta á báða málsaðila til að auðvelda samskipti og finna sanngjarnt samkomulag og skipuleggja fundi. Þeir miða að því að leysa deilumál með viðræðum og öðrum lausnum án þess að þurfa að fara með málið í málaferli og fyrir dómstóla. Sáttasemjarar tryggja að niðurstaðan sé í samræmi við lög og reglugerðir og að henni sé einnig framfylgt.
umboðsmaður
ISCO 2619
Umboðsmenn leysa deilur milli tveggja aðila þar sem til staðar er valdaójafnvægi, og vinna sem óhlutdrægir sáttasemjarar. Þeir taka viðtöl við málsaðila sem eiga hlut að máli og rannsaka málið til þess að komast niðurstöðu til hagsbóta fyrir báða málsaðila. Þeir veita ráðgjöf um lausn deilumála og veita viðskiptavinum stuðning. Kröfurnar eru aðallega gegn opinberum stofnunum og yfirvöldum.