heimspekingur
ISCO 2633
Heimspekingar rannsaka og rökræða um almenn og kerfislæg vandamál sem varða samfélag, menn og einstaklinga. Þeir hafa vel þróaða rökvísa og röksama hæfni til þess að taka þátt í umræðu er tengist tilvist, virðiskerfum, þekkingu og raunveruleika. Þeir vísa til rökfærslna í umræðum sem leiða til dýptar og einföldunar.
sagnfræðingur
ISCO 2633
Sagnfræðingar rannsaka, greina, túlka og kynna fyrri tíð samfélaga manna. Þeir greina skjöl, auðlindir og ummerki frá liðinni tíð til þess að skilja fyrri samfélög.
stjórnmálafræðingur
ISCO 2633
Stjórnmálafræðingar kanna stjórnmálalega hegðun, starfsemi og kerfi, að meðtöldum þeim þáttum sem falla innan þess sviðs. Rannsóknir þeirra innan sviðsins ná frá því að kanna upptök og þróun mismunandi stjórnmálakerfa og til staðbundinna mála eins og t.d. ákvarðanatökuferla, stjórnmálalegs atferlis, stjórnmálalegrar stefna, samfélags og sjónarhorns valds. Þeir veita ráðgjöf til ríkisstjórna og stofnanasamtaka um málefni stjórnarhátta.
ættfræðingur
ISCO 2633
Ættfræðingar rekja sögu uppruna fjölskyldna. Niðurstöður vinnuframlags þeirra eru sýndar í töflu þar sem uppruni kemur fram frá einstaklingi til einstaklings og myndar fjölskyldutré eða þá að ritað er á frásagnarformi. Ættfræðingar nota greiningu á opinberum skrám, óformlegum viðtölum, erfðagreiningu og öðrum aðferðum til að afla upplýsinga.