heilsusálfræðingur
ISCO 2634
Heilsusálfræðingar taka til ýmissa þátta er varða heilsutengda hegðun einstaklinga og hópa, með því að hjálpa einstaklingum eða hópum að koma í veg fyrir sjúkdóma og stuðla að heilbrigðri hegðun með því að veita einnig ráðgjafarþjónustu. Þeir framkvæma störf til þróunar verkefna heilsueflingar og verkefna á grundvelli sálfræðilegrar vísinda, niðurstaðna rannsókna, kenninga, aðferða og tækni. Þeir taka einnig þátt í rannsóknum um heilbrigðismál til að hafa áhrif á opinbera stefnu í málum heilbrigðisþjónustu.
klínískur sálfræðingur
ISCO 2634
Klínískir sálfræðingar greina, endurhæfa og styðja við einstaklinga sem verða fyrir áhrifum andlegrar, tilfinningalegrar og hegðunalegrar röskunar og vandamála, ásamt geðrænna breytinga og sjúkdómsaðstæðna, með því að nota skilvitleg tól og viðeigandi inngrip. Þeir nota klínískar sálfræðilegar auðlindir á grundvelli sálfræðivísinda til að komast að niðurstöðum, kenningum, aðferðum og tækni fyrir rannsóknir, túlkun og spár varðandi upplifanir og hegðun manna.
skólasálfræðingur
ISCO 2634
Námssálfræðingar eru sálfræðingar sem ráðnir eru af menntastofnunum til þess að bjóða upp á sálfræðilegan og tilfinningalegan stuðning til námsmanna sem þurfa á honum að halda. Þeir eru sérhæfðir í ráðstöfun beins stuðnings og afskipta af námsmönnum, stjórna sálrænum prófunum og mati á þeim, og eru í samráði við fjölskyldur, kennara og aðra faglega námsráðgjafa nemenda innan skólans, eins og t.d. skólafélagsráðgjafa, námsráðgjafa, er varðar nemendurna. Þeir geta einnig unnið með skólastjórn til að bæta hagnýtar stuðningsáætlanir í því skyni að bæta velferð nemenda.
sálfræðingur
ISCO 2634
Sálfræðingar rannsaka hegðun og andlegt atferli manna. Þeir veita þjónustu til viðskiptavina sem eiga við geðheilbrigðisvandamál og vandamál í lífinu að stríða s.s. ástvinamissi, sambandsvandamál, heimilisofbeldi og kynferðislega misnotkun. Þeir veita einnig ráðgjöf vegna andlegra heilsufarsvandamála s.s. átröskun, áfallastreituröskun, geðröskun, í því skyni að hjálpa viðskiptavinum við endurhæfingu og til að öðlast heilbrigða hegðun.
sálmeðferðarfræðingur
ISCO 2634
Sálmeðferðarfræðingar aðstoða og meðhöndla notendur heilbrigðisþjónustu með mismunandi sálfræðilegar, félagslegar eða geðrænar raskanir og sjúkdómsaðstæður með því að nota sállæknandi aðferðir. Þeir stuðla að þróun og velferð einstaklingsins og bjóða upp á ráðgjöf um hvernig hægt sé að bæta sambönd, getu og aðferðir við úrlausn vandamála. Þeir nota vísindalegar sállæknandi aðferðir s.s. atferlismeðferð, tilvistargreiningar og lífsmarkmiðsgreiningar, sálgreinandi- eða kerfisbundna fjölskuldumeðferð, til þess að leiðbeina sjúklingunum við uppbyggingu þeirra og hjálpa þeim að leita viðeigandi lausna við vandamálum sínum. Þess er ekki krafist að sálmeðferðarfræðingar hafi háskólapróf í sálfræði eða læknismenntun við geðlækningar. Um er að ræða sjálfstætt starf frá sálfræði, geðlækningum og ráðgjöf.
umsjónarmaður lygamælis
ISCO 2634
Rannsóknarmenn fleirrita undirbúa einstaklinga fyrir prófanir fleirrita, stjórna fleirritsprófuninni og túlka niðurstöður. Þeir fylgjast grannt með smáatriðum og nota margvísleg mælitæki til að fylgjast með öndun, svita, of viðbrögðum hjarta- og æðakerfis til spurninga sem notaðar eru í ferlinu. Rannsóknarmenn fleirrita skrifa skýrslur sem byggjast á niðurstöðum og geta boðið upp á vitnisburði í dómssal.