hljómsveitarstjóri
ISCO 2652
Hljómsveitar- og kórstjórar leiða hópa tónlistarfólks gegnum æfingar, upptökur og lifandi flutning og eflir það til að ná sem bestum árangri. Þeir geta unnið með ýmsum hópum, kórum og hljómsveitum. Hljómsveitar- og kórstjórar aðlaga hraða tónlistarinnar, ryþma hennar, styrk (sterkt eða veikt) og hljóðstíl (t.d. bundið eða slitið) með handahreyfingum og líkamstjáningu til þess að örva tónlistarmennina í að leika samkvæmt því sem tilgreint er í nótunum.
hljóðlistamaður
ISCO 2652
Hljóðlistamenn nota hljóð sem helsta sköpunarmiðil. Þeir tjá sig í gegnum hljóðsköpun um áform sín og auðkenni. Hljóðlist er þverfagleg í eðli sínu og tekur því á sig ólíkar myndir.
kórstjóri
ISCO 2652
Kórstjórar/kórstýrur hafa umsjón með ýmsum þáttum raddlegs, og stundum tónlistarlegs, flutnings tónlistarhópa, s.s. kóra, tónlistarhópa eða þríraddarhópa.
skífuþeytari (DJ)
ISCO 2652
Skífuþeytarar blanda sama tónlist frá mismunandi auðlindum og nota til þess snúningsborð eða blöndunarstjórnborð og spila tónlist á viðburðum fyrir framan lifandi áhorfendur. Þeir geta séð um tónlist í útvarpi. Þeir velja tónlist sem spiluð er í útvarpi og ganga úr skugga um að henni sé útvarpað samkvæmt áætlun. Skífuþeytar geta einnig búið til blöndur til útbreiðslu seinna og til endurspilunar.
söngvari/söngkona
ISCO 2652
Söngvarar/söngkonur eru faglegir tónlistarmenn, með hæfni í notkun raddar sinnar sem hljóðfæris, og með mismunandi raddsvið. Þeir koma fram að viðstöddum áhorfendum og við upptökur á mismunandi tónlistarsviðum.
tónlistarmaður/tónlistarkona
ISCO 2652
Tónlistarmenn/tónlistarkonur flytja söng- eða tónlistarverk sem geta verið tekin upp eða spiluð fyrir áhorfendahóp. Þeir/þær búa yfir verkkunnáttu og spila á eitt eða fleiri hljóðfæri eða nota röddina sína. Tónlistarmaðurinn/tónlistarkonan getur einnig skrifað og hljóðritað tónlist.
tónlistarstjórnandi
ISCO 2652
Tónlistarstjórnendur leiða tónlistarhópa s.s. hljómsveitir og hljómsveitarhópa á meðan á beinum flutningi stendur eða á meðan upptökum stendur. Þeir skipuleggja tónlistina og listaverkin, samræma tónlistarmennina sem spila og skrá frammistöðu þeirra. Tónlistarstjórnendur eru fagaðilar sem starfa á ýmsum stöðum, t.d. í kvikmyndaiðnaði, tónlistarmyndböndum, útvarpsstöðvum, tónlistarhópum eða skólum.
tónlistarútsetjari
ISCO 2652
Tónlistarútsetjarar hanna útsetningu tónlistar eftir að hún verður til af tónskáldi. Þeir túlka, aðlaga eða breyta listaverkum fyrir önnur hljóðfæri eða raddir, eða fyrir annars konar stíl. Tónlistarútsetjarar eru sérfræðingar í hljóðfærum og hljómsveitarútsetningu, hljómsetningu, fjölröddun og listaverkaaðferðum.
tónskáld
ISCO 2652
Tónskáld skapa ný tónverk á mismunandi stílbrögðum. Þeir skrifa oftast niður skapaða tónlist í nótnaskrift. Tónskáldin geta unnið sjálfstætt eða sem hluti af hóp eða samleikshóp. Margir skapa verk til að styðja við kvikmynda-, sjónvarps-, leikja- eða beinan flutning.
æfingastjóri
ISCO 2652
Æfingastjórar fylgja listflytjendum, oftast söngvurum, og fara eftir leiðbeiningum tónlistarstjórnenda við að stjórna æfingum og leiðbeina listamönnunum við æfingarferlið.