framleiðandi hlaðvarpa
ISCO 2654
Hlaðvarpsframleiðendur hafa umsjón með öllu framleiðsluferli hlaðvarps. Þetta ferli felur í sér að skipuleggja þætti, styðja við hljóðupptöku og undirbúning útgáfu, framleiðsluverkefni og að birta endanlega útgáfu vörunnar. Þau þróa einnig kynningar- og markaðsáætlanir sem byggja á þróun hlaðvarpsmarkaðsin og markhópa.
framleiðandi útvarpsefnis
ISCO 2654
Útvarpsframleiðendur bera ábyrgð á að skipuleggja framleiðslu útvarpsþátta. Þeir hafa umsjón með mismunandi hliðum útvarpsþáttar s.s. innihaldi, hljóðframleiðslu, auðlindaskipulagningu og persónulegri yfirsýn.
framleiðsluhönnuður
ISCO 2654
Framleiðsluhönnuðir bera ábyrgð á heildaryfirbragði (útliti, litum og staðsetningu) sjónvarpsþátta, þáttaraða, kvikmynda og auglýsinga. Þeir mynda sjónræna hugmynd fyrir framleiðsluna svo sem senuhönnun, ljós, búninga og sjónarhorn tökuvéla. Framleiðsluhönnuðir starfa með framkvæmdastjóra og hönnuðum og hafa umsjón með listdeildinni. Þeir búa einnig til uppdrætti, teikningar, gera lita- og staðarannsóknir og veita leikstjóra ráðgjöf varðandi leikmyndir og sviðsmynd.
kvikmyndaframleiðandi
ISCO 2654
Myndbanda- og kvikmyndaframleiðendur hafa umsjón með heildarframleiðslu kvikmyndar eða sjónvarpsþáttar. Þeir velja þau handrit sem breytt verður í kvikmyndir eða þætti. Myndbanda- og kvikmyndaframleiðendur finna fjármagn til þess að búa til kvikmynd eða sjónvarpsþætti. Þeir taka lokaákvörðun varðandi heildarverkið, allt frá þróun og klippingu og til dreifingar. Við umfangsmiklar framleiðslur geta myndbanda- og kvikmyndaframleiðendur verið hluti framleiðsluteymis og geta borið ábyrgð á einhverjum af þeim verkefnum.
listrænn umsjónarmaður
ISCO 2654
Umsjónarmenn lista eru meðal sérfræðinga sem stjórna viðskiptaþörfum stofnunar sem varið er til lista. Þau veita stuðning við verkefni sem snúa að fjárhag og rekstri fyrirtækisins, og þau geta unnið fyrir ýmsar stofnanir, frá fyrirtækjum reknum í hagnaðarskyni til stjórnvalda eða sjálfeignarstofnana. Dæmi um þessar stofnanir eru dansstúdíó, kvikmyndaver, leikhús og listasöfn eða gallerí.
liststjórnandi
ISCO 2654
Liststjórnendur móta sjónrænt útlit hugmyndar. Þeir skapa nýstárlega hönnun, þróa listræn verkefni og stjórna samvinnu milli allra þátta. Liststjórar geta starfað með skapandi störfum í leikhúsi, markaðssetningu, auglýsingum, myndböndum og kvikmyndum, tískufyrirtækjum eða netfyrirtækjum. Þeir sjá til þess að þau störf sem unnin eru séu sjónrænt heillandi fyrir áhorfendur.
ljósameistari
ISCO 2654
Ljósameistarar ákvarða hvaða ljós þarf við framleiðslu í samræmi við listræna sýn myndbands- og kvikmyndaleikstjórans. Þeir nota handritið til að hanna ljósþörf í hverri töku. Ljósameistarar hafa umsjón með uppsetningu rekstri lýsingar.
ljósmyndunarstjóri
ISCO 2654
Ljósmyndastjórar bera ábyrgð á sjónrænni túlkun handrits og allri ljósmyndun kvikmyndar, þar á meðal mótun, litun, ljósanotkun, stíl og staðsetningarvali. Þeir búa til sjónrænt útlit kvikmyndar eða sjónvarpsþáttar og velja ljósmyndabúnað, þar á meðal linsur og síur. Ljósmyndastjórar stjórna starfsfólki við sjónrænan búnað og ljósatæknum. Þeir vinna með myndbands- og kvikmyndaleikstjóra til að ná fram tilætluðum áhrifum.
myndbanda- og kvikmyndaframleiðandi
ISCO 2654
Framleiðendur bera ábyrgð á stjórnun framleiðslu tónlistar, kvikmynda eða þátta. Þeir skipuleggja og samræma alla þætti framleiðslunnar, s.s. stefnu, birtingu og fjármögnun. Framleiðendur hafa umsjón með framleiðslunni og stjórna öllum tæknilegum og skipulegum þáttum er varða upptökur og klippingu.
myndbanda- og kvikmyndaklippari
ISCO 2654
Myndbanda- og kvikmyndaklipparar bera ábyrgð á samsetningu og klippingu óunnins efnis rökrétt og fagurfræðilega annað hvort fyrir kvikmyndir, sjónvarpsþætti eða fyrir innlendan markað. Þeir endurskipuleggja sögusvið sem búið er að taka upp og ákveða hvaða tæknibrellur þörf er á. Myndbanda- og kvikmyndaklipparar vinna náið með hljóðklippurum og tónlistarklippurum.
myndbanda- og kvikmyndaleikstjóri
ISCO 2654
Myndbanda- og kvikmyndaleikstjórar eru ábyrgir fyrir allri framleiðslu kvikmyndar eða sjónvarpsefnis. Þeir ritstýra og yfirfæra letur í hljóð- og myndir. Myndbanda- og kvikmyndaleikstjórar hafa umsjón með og stjórna tökuliði. Þeir tjá skapandi sýn til leikara, hljóð- og myndvinnslufólks, ljósatækna o.s.frv. og stjórna þeim. Myndbanda- og kvikmyndaleikstjórar hafa einnig umsjón með vinnslu á myndefni.
teiknimyndaleikstjóri
ISCO 2654
Teiknimyndaleikstjórar leiðbeina og ráða margmiðlunarlistamenn. Þeir bera ábyrgð á gæðum teiknimyndarinnar og að framleiðslan sé afhent tímanlega og innan fjárhagsáætlunar.
tæknilegur stjórnandi
ISCO 2654
Tæknilegir stjórnendur annast framkvæmd á listrænni framtíðarsýn höfunda innan tæknilegra takmarkana. Þeir samræma aðgerðir sem ná yfir mismunandi framleiðslueiningar, s.s. á vettvangi, búninga, hljóðs og lýsingar og förðunar. Þeir aðlaga frumgerðina og kanna hagkvæmni, framkvæmd, starfrækslu og tæknilegt eftirlit með listrænu verkefni. Þeir bera einnig ábyrgð á sviðsbúnaði og tæknibúnaði.
tónlistarframleiðandi
ISCO 2654
Tónlistarframleiðendur bera ábyrgð á að afla tónlistar sem á að gefa út. Þeir hlusta á hlusta á upptökur laga og ákvarða hvort þau séu nógu góð til að gefa út. Tónlistarframleiðendur hafa umsjón með framleiðslu á hljómplötum. Þeir stýra tæknilegum þáttum varðandi skráningu og klippingu.
umsjónarmaður leikaravals
ISCO 2654
Umsjónarmenn leikaravals velja leikara í öll hlutverk kvikmyndar eða sjónvarpsþáttaröð. Þeir vinna með framleiðanda og framkvæmdastjóra til að ákvarða hvað þeir séu að leita að. Umsjónarmenn leikaravals setja sig í samband við umboðsmenn leikara og skipuleggja viðtöl og áheyrnarprufur fyrir hlutverk. Þeir ákvarða gjöld og samninga fyrir leikara og aukaleikara.
umsjónarmaður sviðsmyndar
ISCO 2654
Umsjónarmenn sviðsmyndar hafa eftirlit með og stjórna uppsetningu sviðslistaframleiðslu með því að sameina ýmsar aðgerðir og þætti leiklistarframleiðslu. Þeir tryggja gæði og ljúkningu leiklistarframleiðslunnar og leiða sköpunarhópinn í viðleitni til að láta listræna sýn þeirra raungerast.
verkstjóri eftirvinnslu
ISCO 2654
Verkstjórar eftirvinnslu hafa eftirlit með allri eftirvinnslu framleiðsluferlisins. Þeir vinna saman með tónlistarklippurum og kvikmyndaklippurum. Verkstjórar sem hafa eftirlit með framleiðslu aðstoða við skipulagningu verkflæðis til þess að tryggja að tekið sé tillit til eftirvinnsluferlis framleiðslu og að það sé innan fjárhagsáætlunar. Þeir sjá til þess að lokaverkinu sé skilað og því dreift.