efnafræðisérfræðingur
ISCO 3111
Efnafræðisérfræðingar fylgjast með efnafræðiferlum og stjórna prófunum til þess að greina efnafræðileg efni til framleiðslu eða í vísindaskyni. Þeir vinna á rannsóknarstofum eða framleiðsluhúsakynnum þar sem þeir aðstoða efnafræðinga í vinnu sinni. Efnafræðisérfræðingar framkvæma starfsemi á rannsóknarstofum, rannsaka efnafræðileg efni, greina upplýsingar og gera skýrslur um vinnu sína.
efnagreinir matvæla
ISCO 3111
Efnagreinar matvæla framkvæma staðlaðar prófanir til að ákvarða efnafræðilega, efnislega eða örverufræðilega eiginleika framleiðsluvara til manneldis.
efnisprófunarsérfræðingur
ISCO 3111
Efnisprófunarsérfræðingar framkvæma margbreytilegar prófanir á efni s.s. jarðvegi, steinsteypu, múrverki og malbiki, til að fara yfir samræmi við fyrirhugaða notkun og skilmála.
fjarkönnunarsérfræðingur
ISCO 3111
Fjarkönnunarsérfræðingar safna frá upplýsingum sem berast í lofti. Þeir nýta sér búnað, sem miðar að öflun gagna og ákvörðun á landfræðilegum stöðum, til að stuðla að mismunandi starfsemi á borð við varðveislu lands, borgarskipulags og hernaðaraðgerða.
litskiljunarfræðingur
ISCO 3111
Litskiljunarfræðingar beita samsvarandi litskiljunartækni (s.s. gas-, vökva- eða jónaskiptatækni) til að þekkja og greina úrtök efnasambanda. Þeir setja kvarða á og viðhalda litskiljunarvélbúnaði og undirbúa tækin og lausnir. Litskiljunarfræðingar geta einnig þróað og beitt nýjum litskiljunaraðferðum í samræmi við sýni og úrtök efnasambanda sem þarf að greina.
sérfræðingur rannsóknarstofu með leðurvörur
ISCO 3111
Sérfræðingar rannsóknarstofu með leðurvörur framkvæma og tilkynna um efnagreiningar og efnislegar prófanir á leðri. Þeir framkvæma einnig og tilkynna efnagreiningar á aukabúnaði, greiningar á umhverfisútblástri og losun. Þeir sjá til þess að prófanirnar fari fram samkvæmt viðeigandi stöðlum, innanlands, aþjóðlegra eða viðskiptavina.
sérfræðingur í eðlifræði
ISCO 3111
Eðlisfræðisérfræðingar fylgjast með eðlisfræðiferlum og framkvæma prófanir í tengslum við tilgang framleiðslu, menntunar eða tækni. Þeir vinna á rannsóknarstofum, í skólum eða framleiðsluhúsakynnum þar sem þeir aðstoða eðlisfræðinga við vinnu sína. Eðlisfræðisérfræðingar framkvæma tæknilega eða hagnýta vinnu og gefa skýrslu um niðurstöður sínar.
sérfræðingur í geislavörnum
ISCO 3111
Geislavarnasérfræðingar fylgjast með stigi geislunar í byggingum og á stöðum til þess að tryggja að þær samræmist heilsu- og öryggisstöðlum og til að koma í veg fyrir hættulega aukningu á geislunarstigi. Þeir gera ráðstafanir til að lágmarka útgeislun, og til að koma í veg fyrir frekari mengun þegar um er að ræða geislunarmengun, með því að þróa geislunarvarnakerfi, og þá sérstaklega fyrir kjarnorkuver og kjarnorkubúnað.
sérfræðingur í haf-/vatnamælingum
ISCO 3111
Sjómælinga- og landmælingasérfræðingar framkvæma haffræðileg og landmælingarleg verkefni í sjávarumhverfi. Þeir aðstoða sjó- og landmælendur, og nota til þess sérhæfðan búnað í því skyni að varpa og kanna kortlagningu fyrir neðan sjávarmál og formfræði hluta úr vatni. Þeir aðstoða við uppsetningu og útbreiðslu sjómælinga- og landmælingabúnaðar og gefa skýrslu um störf þeirra.
sérfræðingur í jarðfræði
ISCO 3111
Aðstoðarmenn jarðfræðinga aðstoða við alla starfsemi sem fer fram á vegum jarðfræðinga. Undir umsjón jarðfræðinga safna þeir efni, gera rannsóknir og rannsaka jarðsýni. Aðstoðarmenn jarðfræðinga aðstoða við að ákvarða gildi lands með tilliti til olíu- eða gasleitar. Þeir annast ýmis tæknileg verkefni, þ.m.t. sýnatöku á meðan á jarðefnafræðilegum könnunum stendur, vinnu við boranir og taka þátt í jarðeðlisfræðilegum könnunum og jarðfræðilegum rannsóknum.
sérfræðingur í jarðvegsrannsóknum
ISCO 3111
Jarðvegsrannsóknarsérfræðingar greina jarðveg með því að framkvæma tæknileg mælingaverkefni, með því að nota jarðvegsrannsóknaraðferðir. Þeir leggja áherslu á ferlið við flokkun jarðvegsgerða og annarra jarðvegseiginleika. Jarðvegsrannsóknarsérfræðingar nota landmælingabúnað og nýta áætlanir til að sækja og túlka viðeigandi gögn, og framkvæma útreikninga eftir þörfum.
sérfræðingur í mælingafræði
ISCO 3111
Mælieiningasérfræðingar beita sérfræðiþekkingu sinni á mælieiningum til þess að kvarða mælitæki, prófunarbúnað og greina frammistöðu sína. Þeir sjá til þess að búnaðurinn sem metinn er uppfylli kröfur um nákvæmni, frammistöðu og áreiðanleika. Þeir gefa skýrslu um vinnu sína og veita ráðgjöf varðandi tæknileg mál varðandi mælitæki.
sérfræðingur í vinnslu kjarnorku
ISCO 3111
Kjarnorkusérfræðingar vinna sem aðstoð við eðlisfræðinga og verkfræðinga í kjarnorkuverum og orkuverum. Þeir hafa eftirlit með verklagsreglum sem tryggja öryggi og gæðaeftirlit og viðhalda búnaði. Þeir meðhöndla einnig og stjórna geislavirkum búnaði og mæla fyrir geislunarstigi til að tryggja öryggi.
veðursérfræðingur
ISCO 3111
Veðursérfræðingar safna saman miklu magni veðurupplýsinga fyrir notendur veðurupplýsinga s.s. flugmálafyrirtæki eða veðurfræðistofnanir. Þeir starfrækja sérhæfð mælitæki til að gera nákvæmar veðurspár og tilkynna athuganir sínar. Veðursérfræðingar styðja veðurfræðinga í vísindalegri starfsemi þeirra.