byggingarlistartækniteiknari
ISCO 3118
Byggingarlistartækniteiknarar búa til teikningar af skilgreiningum og hugmyndum sem arkitektar veita. Þeir teikna arkitektateikningar með því að nota tölvustuddan búnað og hugbúnað, eða með því að nota hefðbundnar aðferðir eins og blað og penna.
byggingatækniteiknari
ISCO 3118
Byggingatækniteiknarar teikna og undirbúa uppköst fyrir byggingarverkfræðinga og arkitekta mismunandi byggingarlistarverkefna, staðfræðileg kort, eða fyrir endurbyggingu núverandi skipulags. Þeir leggja fram uppköstin og allar tilgreiningar og kröfur s.s. stærðfræðilegar, fagurfræðilegar, verkfræðilegar og tæknilegar.
hönnuður prentaðra rafrásaborða
ISCO 3118
Hönnuðir prentaðra rafrásaborða gera skýringarteikningu og hanna uppbyggingu rafrásaborða. Þeir sjá fyrir sér rökræna staðsetningu leiðandi rása, kopars og takkaborða á borðanum. Þeir nota tölvuforrit og sérhæfðan hugbúnað fyrir hönnunina.
rafeindatækniteiknari
ISCO 3118
Rafeindatækniteiknarar veita rafeindatækniverkfræðingum stuðning við hönnun og hugmyndavinnu rafeindatæknibúnaðar. Þeir gera uppköst að verkteikningum og setja saman skýringarmyndir af rafrænum kerfum og íhlutum með því að nota tæknilegan teiknihugbúnað.
raftækniteiknari
ISCO 3118
Raftækniteiknarar styðja verkfræðinga við hönnun og hugmyndavinnu rafmagnsbúnaðar. Þeir, með stuðningi sérhæfðs hugbúnaðar, leggja drög að tæknihönnun margra mismunandi rafmagnskerfa s.s. spennuspenna, orkuvera eða orkubirgða í byggingum.
rafvélrænn tækniteiknari
ISCO 3118
Rafvélrænir tækniteiknarar teikna og hanna verkteikningar í sameiningu við rafvélræna verkfræðinga. Þeir túlka upplýsingar og kröfur búnar til hjá verkfræðingum og hanna rafvélrænan búnað og íhluti.
stjórnandi tölvustuddrar hönnunar
ISCO 3118
Stjórnendur tölvustuddrar hönnunar nota tölvuvélbúnað og hugbúnað til þess að bæta tæknilegu umfangi við tölvustuddar hönnunarteikningar. Stjórnendur tölvustuddrar hönnunar sjá til þess að allir viðbótarþættir hannaðrar ímyndar vara séu nákvæmir og raunhæfir. Þeir reikna einnig út það magn efna sem þarf til framleiðslu afurðanna. Síðar er unnið úr stafrænni hönnun með tölvustuddum framleiðsluvélum sem framleiða fullunna vöru.
sérfræðingur tölvustuddrar fataframleiðslu
ISCO 3118
Sérfræðingar tölvustuddrar fataframleiðslu nota hugbúnað til að búa til hönnunaráætlanir fyrir fataafurðir. Þeir vinna í tvívíddarhönnun sem er þekkt sem yfirborðsgerð líkana, eða þrívíddarhönnun sem kölluð er gerð líkana á föstu formi. Þeir nota yfirborðsgerð líkana til að teikna flata kynningu af fataafurðinni. Í gerð líkana á föstu formi hanna þeir þrívíddarútstillingu á skipulagi eða íhlut til þess að hægt sé að sjá sýndarútlit fataafurðarinnar.
sérfræðingur í þrívíddarprentun
ISCO 3118
Þrívíddarprentunartæknar aðstoða við hönnun og forritanir vara, allt frá gervilimum og til þrívíddarsmámynda. Þeir geta einnig veitt viðhald á þrívíddarprentun, athugað þrívíddarbirtingu fyrir viðskiptavini og keyrt prófanir þrívíddarprentunar. Þrívíddarprentunartæknar geta einnig gert við, viðhaldið og hreinsað þrívíddarprentara.
tækniteiknari
ISCO 3118
Tækniteiknarar undirbúa og hanna tæknilegar teikningar með því að nota sérstakan hugbúnað eða handvirka tækni til að sýna hvernig eitthvað er byggt eða hvernig það virkar.
tækniteiknari hitunar, loftræstingar og loftkælingar (og kælingar)
ISCO 3118
Tækniteiknarar hitunar, loftræstingar og loftkælingar (og kælingar) hanna frumgerðir og uppdrætti, tækileg smáatriði, og fagurfræðilegar samantektir sem verkfræðingar sjá fyrir vegna hönnunar teikninga, oftast tölvustuddra, er varðar hitunar-, loftræstingar-, loftkælingar- og mögulega kælikerfi. Þeir geta gert drög að hvers konar verkefnum þar sem hægt er að nota þessi kerfi.
tækniteiknari í bifvélaverkfræði
ISCO 3118
Tækniteiknarar í bifvélaverkfræði breyta hönnun bifvélaverkfræðinga í tæknilegar teikningar oftast með því að nota hugbúnað. Teikningar þeirra lýsa í smáatriðum aðferðum við umfang, festingu og samsetningu ásamt öðrum upplýsingum sem notaðar eru við framleiðslu vélknúinna hluta, bíla, hópbifreiða, vörubifreiða og annara vélknúinna ökutækja.
tækniteiknari í geimverkfræði
ISCO 3118
Tækniteiknarar í geimverkfræði umbreyta hönnun geimverkfræðinga í tæknilegar teikningar oftast með því að nota tölvustudd hönnunarforrit. Teikningar þeirra lýsa í smáatriðum aðferðum við umfang, festingu og samsetningu ásamt öðrum upplýsingum sem notaðar eru við framleiðslu loftfara og geimfara.
tækniteiknari í járnbrautarvagnaverkfræði
ISCO 3118
Tækniteiknarar í járnbrautarvagnaverkfræði umbreyta hönnun járnbrautarverkfræðinga í tæknilegar teikningar oftast með notkun hugbúnaðar. Teikningar þeirra lýsa í smáatriðum aðferðum við umfang, festingu og samsetningu ásamt öðrum upplýsingum sem notaðar eru við framleiðslu járnbrautarökutækja s.s. eimreiðar, margar einingar, kerrur og vagnar.
tækniteiknari í skipaverkfræði
ISCO 3118
Tækniteiknarar í skipaverkfræði umbreyta hönnun vélstjóra í tæknilegar teikningar oftast með því að nota hugbúnað. Teikningar þeirra lýsa í smáatriðum aðferðum við umfang, festingu og samsetningu ásamt öðrum upplýsingum sem notaðar eru við framleiðslu allra tegunda skipa allt frá skemmtiferðaskipum og til sjóherskipa, þ.m.t. kafbátum.
vélaverkfræðitækniteiknari
ISCO 3118
Vélaverkfræðiteiknarar breyta hönnun og uppköstum vélaverkfræðinga í tæknilegar teikningar þar sem lýst er í smáatriðum aðferðum við umfang, festingu og samsetningu ásamt öðrum upplýsingum sem notaðar eru til dæmis í framleiðsluferlinu.
vöruþróunarverkfræðitækniteiknari
ISCO 3118
Vöruþróunarverkfræðitækniteiknarar hanna og teikna verkteikningar til að gefa nýjum hugtökum og nýrri hönnun líf. Þeir gera drög að og teikna ítarlegar áætlanir um hvernig skal framleiða vöru.